Með breytingu á reglugerð um ökuskírteini verður ökumönnum með almenn ökuréttindi heimilt að aka rafbílum, án eftirvagns, sem vega allt að 4.250 kílóum í stað 3.500 áður.
Eyjólfur Ármannsson undirritaði breytingu á reglugerðinni í gær og nær hún til þeirra sem hafa haft B-réttindi í minnst tvö ár.
Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að rafbílar séu oft nokkuð þyngri en sambærilegir bensín- og dísilbílar vegna þungdar á rafhlöðum. Þetta hafi orðið til þess að rafknúnir sendibílar lendi yfir þyngdarmörkum sem geri það að verkum að ökumaður þurfi meirapróf þótt bílarnir væru að öðru leyti sambærilegir hefðbundnum bensín- og dísilbílum.
„Það er mikilvægt að regluverkið styðji við fyrirtæki og einstaklinga sem vilja fjárfesta í vistvænni ökutækjum. Nú geta ökumenn með almenn ökuréttindi ekið þyngri rafknúnum bílum og nýtt burðargetu þeirra til jafns við eldri og meira mengandi bíla. Þetta er því mikilvægt skref í að hvetja til orkuskipta,“ er haft eftir Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra.