Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði samninginn við Íran á kvöldverðarfundi með Emmanuel Macron Frakklandsforseta í Versölum í kvöld. Stjórnvöld í Íran hafa staðfest að forseti Írans, Masoud Pezeshkian, hafi einnig skrifað undir samninginn.
Samningurinn sem forsetar Bandaríkjanna og Íran hafa undirritað er viljayfirlýsing um að þjóðirnar ætli að binda endi á stríðsátökin í Mið-Austurlöndum. Eiginlegar friðarviðræður og samningaviðræður geta því hafist og opnun Hormússundsins er fyrsta skrefið. Bandaríkin ætla að aflétta herkví sinni í Persaflóa og jafnframt aflétta viðskiptaþvingunum á olíuiðnað Írana sem hafa lamað hagkerfi landsins.
Í gær greindu bandarískir embættismenn fjölmiðlum einnig frá fjórtán meginatriðum viljayfirlýsingarinnar milli Bandaríkjanna og Írans. Þar segir meðal annars að ríkin skuldbindi sig til að ná lokasamkomulagi um frið innan sextíu daga.
Auðgað úran verður fjarlægt
Þá segjast ríkin hafa sammælst um að vinna að því að fjarlægja auðgað úran Írans undir eftirliti Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar og koma þannig í veg fyrir að Íran búi yfir kjarnorkuvopnum. Þegar endanlegt friðarsamkomulag næst við Írana um kjarnorkumál, þá ætla Bandaríkin og nágrannaþjóðir Írana að leggja til 300 milljarða dollara í uppbyggingarsjóð vegna tjóns af völdum stríðsátakanna.
Hezbobollah-samtökin þakklát Írönun
Hezbollah-liðar fagna samningnum og leiðtogi samtakanna Naim Qassem sagði samninginn mikinn sigur fyrir Írana. Hann þakkaði yfirvöldum í Íran fyrir að tryggja vopnahlé í Líbanon.
Dregið hefur úr árásum Ísraela á Líbanon frá því að tilkynnt var um undirritun viljayfirlýsingarinnar. Ísraelar gerðu þó árásir í suður Líbanon og að minnsta kosti fimm voru drepnir í þeim árásum. Ísraelsher greindi einnig frá árásum Hezbollah í gær, en fimm ísraelskir hermenn eru sagðir hafa slasast í árásunun.