2G-tæknin var orðin 30 ára gömul og því ekki forsvaranlegt fyrir fjarskiptafélögin að halda kerfinu úti. Þetta segir Ólafur Magnússon, tæknistjóri hjá fjarskiptafélaginu NOVA.
Ólafur líkir símkerfunum við hraðbrautir. „Ef við horfum á [þetta] í samanburði við Reykjanesbrautina – ef við værum með átta akreinar og svo að fylla þær með hestvögnum og hjólum. Og við þurfum alltaf að koma að fleiri og fleiri bílum. Við þurfum bara fleiri akreinar til að geta þjónað kröfum nútímans.“
Nokkur þúsund símar geta átt í erfiðleikum með að ná sambandi við Neyðarlínuna eftir að 2G-kerfið var lagt niður. Forstjóri Fjarskiptastofu sagði við fréttastofu í dag að fjarskiptafélögin beri ábyrgð á því að slökkva á gamla kerfinu.
„Svona fjárhagslega og tæknilega séð er ekki forsvaranlegt fyrir okkur að halda þessu áfram út í hið óendanlega. Þetta er í raun keyrandi allt inn í sama ecosystem [vistkerfi]. Þú ert bara með ákveðinn hugbúnað sem er að stýra þessu öllu saman,“ segir Ólafur.
Hann segir Ísland, sökum lítils markaðar, hafa lent aftarlega á merinni þegar kemur að hugbúnaðaruppfærslum hjá sumum framleiðendum.
„Núna er bara svo komið að þessi nýi hugbúnaður sem kemur frá framleiðendum styður bara ekki eldri tækni,“ segir Ólafur. „Þá hættir bara 2G og 3G að virka hérna.“
„Farsímar eru ekki neyðarkerfi. Þetta er ekki hannað sem slíkt,“ segir Ólafur. Hann segir fjarskiptafyrirtæki ekki geta tryggt aðgengi og að kerfið nái um allt land.
„Við reynum alltaf að gera okkar besta fyrir okkar viðskiptavini og hafa almannahagsmuni í forgrunni.“
Ólafur, líkt og aðrir sem fréttastofa hefur rætt við, hvetur fólk til að athuga hjá sínum fjarskiptafélögum hvort síminn þeirra styðji 4G-tæknina og hringja í 1280 til þess að athuga með neyðarsímtöl.