Flugsveit hans hátignar Karls Bretakonungs er í Íslandsheimsókn og lenti á Akureyrarflugvelli í dag. Flugmennirnir sögðu útsýnið á leiðinni hafa verið stórbrotið og eru spenntir að sjá landslagið á leið til Reykjavíkur á morgun.
Bretar kalla flugsveitina The Royal Air Squadron. Hún hefur verið starfandi frá 1966 og er klúbbur með um hundrað flugmenn sem fljúga litlum, léttari vélum. Árið 2016 fékk klúbburinn konunglega nafnbót og verndari hans er í dag Karl Bretlandskonungur.
Sveitinni er stundum ruglað við breska flugherinn. Hermenn eru þeir ekki, þó að sumir þeirra hafi áður flogið fyrir herinn.
Reynslan í hópnum er mikil og segjast flestir þeirra með ólæknandi flugdellu.
Flugvélarnar eru margar eldri en 50 ára og sumar hafa flugmennirnir byggt sjálfir. Spurðir hvaða vél sé áhugaverðust - er það auðvitað þeirra eigin sem ber af.
Hópinn segja þeir meira en bara flugklúbb, það sem þeir geri sé diplómasía, að ferðast um heiminn og eignast vini í fluggeiranum.
Forseti flugsveitarinnar, Peter Fernandez, segir senda konungi bréf að lokinni Íslandsförinni:
„Þegar við komum heim skrifa ég konungi og segi honum af ferðinni til Íslands og að við höfum eignast þar vini í fluggeiranum. Ég held að í heiminum eins og hann er í dag, muni um allt - hversu smátt sem það er.“