Noregur vann sigur á Svíþjóð, 3:1, í vináttulandsleik þjóðanna í Osló í Noregi í kvöld.
Bæði lið eru á leiðinni á HM karla í fótbolta og leika einn vináttulandsleik til viðbótar fyrir mótið. Norðmenn mæta Marokkó og Svíþjóð Grikklandi.
Jörgen Strand Larsen skoraði tvö mörk fyrir Noreg og Antonio Nusa skoraði eitt en þau komu öll í fyrri hálfleik. Alexander Isak minnkaði svo muninn fyrir Svíþjóð í seinni hálfleik.
Norðmenn voru án fyrirliðans Martin Ödegaard og framherjans Erling Haaland en framherjinn Viktor Gyökeres var ekki með Svíum.