Nokkur hundruð minkar sluppu frá Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu barst tilkynning málið klukkan rúmlega sjö í morgun. Ekki liggur fyrir hvernig þetta bar að og er rannsókn lögreglu á frumstigi. Segir í tilkynningunni að viðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir hafi verið upplýst um málið og hafi strax brugðist við. Talið að minkunum hafi verið sleppt úr búrunum
Nokkur hundruð minkar sluppu úr Dalsbúi