Stúlkan sem lést í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags heitir Hannah Jane Large og er frá Írlandi, hún var tæplega 19 ára gömul þegar hún lést. Samkvæmt heimildum DV var hún tiltölulega nýkomin til landsins. Vísir greinir frá nafninu hennar og segir að von sé á foreldrum hennar til landsins. Hin ungmennin tvö sem létust í slysinu hétu Arndís Halla Guðlaugsdóttir, 16 ára, og Benjamín Guðmundsson, 20 ára.
Nöfn ungmennanna þriggja sem létust á Krýsuvíkurvegi