Barnamenningarsjóður úthlutaði í gær, á degi barnsins, styrkjum til 43 fjölbreyttra verkefna á sviði barnamenningar. Þetta segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Úthlutun styrkja fór fram í Höfuðstöðinni, þar sem hljómsveit Tónskóla Sigursveins spilaði fyrir gesti í sumarblíðunni.
142 umsóknir bárust að þessu sinni en þetta er áttunda úthlutun sjóðsins frá stofnun hans. Þriggja manna fagráð afgreiddi allar umsóknirnar. Meirihluti umsókna, eða ríflega 60%, snéri að tónlist, sviðslistum og myndlist.
Meirihluti umsókna tók mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna en ríflega helmingur allra verkefna mun ná til landsbyggðarinnar.
Hæstu styrkir í ár fara til barnamenningarhátíða víðs vegar um land: Skúnaskrall á Norðurlandi vestra, Undur og Furða á Austurlandi, Barnamenningarhátíð Suðurlands, Púkinn á Vestfjörðum og Barnó – Best mest vest! á Vesturlandi.
Eftirfarandi verkefni hlutu styrki:
- Barnadagskrá Act alone, 900.000
- Barna- og ungmennakvikmyndahátíðin UngRIFF 2026, 2.000.000
- HIMA 2026, 500.000
- Sumarsmiðjur 2026, 100.000
- Tónlistarsmiðja og þátttaka í fjölskyldutónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg, 500.000
- Ungleikur-Sviðslistir fyrir unglinga með unglingum, 3.000.000
- Undur og furða, 6.000.000
- Skapandi laugardagar í Edinborgarhúsinu, 1.000.000
- Listasmiðja ListaVestursins, 1.000.000
- Hilmuskólinn, 300.000
- BAUN. Barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ, 1.300.000
- Leirum blómapotta – örnámskeið fyrir fjölskyldur, 320.000
- Heimar og himingeimar, 630.000
- Fjölskyldudagskrá Hamraborg Festival 2026, 1.400.000
- Stúdíó Handbendi 2026-27, 2.000.000
- Vinalestur Heiðrúnar, 300.000
- Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík, 2.000.000
- Landskeppni Barna og Unglinga í Myndasögugerð – Kríukeppnin, 1.400.000
- Barnadagskrá Stockfish kvikmynda- og bransahátíðar, 1.400.000
- Jólabókaflóð barnanna í Grundarfirði, 1.000.000
- Sviðið okkar, 1.000.000
- Loftvægi, tónverk flutt af skólahljómsveitum við opnun Listahátíðar í Reykjavík, 950.000
- Lúðrasveit Stykkishólms á faraldsfæti, 500.000
- I feel like telling a story - intercultural children theater experience, 1.700.000
- Blekking – leikverk í skólastofum, 3.000.000
- Myndlist fyrir alla, 3.000.000
- Varir að eilífu, 200.000
- Öskubuska: Óperuævintýri fyrir börn, 4.000.000
- Söng- og óperuverkefni á Óperudögum 2026, 2.000.000
- Upptakturinn 2027, 1.300.000
- Hinsegin litir framtíðarinnar, 5.000.000
- BIG Bang tónlistarhátíð fyrir unga áheyrendur, 4.000.000
- Barnamenningarhátíð á Suðurlandi, 6.000.000
- Skúnaskrall – Öll saman, 6.000.000
- BARNÓ – BEST MEST VEST 2026, 6.000.000
- Galdrar í tónlist Skólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Suðurlands 2026, 1.900.000
- Stíll hönnunarkeppni og Danskeppni Samfés 2027, 1.900.000
- Sögur – Skapandi skrif og Sögur – Verðlaunahátíð barnanna, 2.500.000
- Listasmiðjur á Tungumálatöfrum, 1.800.000
- Norbusang 2026 – Norrænt barna- og ungmennakóramót, 1.800.000
- Sólarpönk: Bjartsýnishátíð, 400.000
- Skapandi framtíð púkanna á Vestfjörðum, 6.000.000
- Bætum og kætum Barnaspítala Hringsins, 4.000.000