„Kjarnaborhola á Landeyjasandi hefur gefið nytsamlegar upplýsingar um þykkt, gerð og uppbyggingu jarðlaga við ströndina,“ segir Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur hjá Völubergi, í samtali við vefmiðilinn Tígul. Völuberg hefur umsjón með kjarnaborununum fyrir Eyjagöng.
Kjarnaborun lauk við bæinn Kross á Landeyjarsandi á laugardag. Þannig hefur náðst að safna öllum gögnum sem þarf til að rannsaka heildstætt hve aðlaðandi er að leggja göng milli lands og Eyja.
Benedikt segir jarðfræðilegar aðstæður ekki mjög frábrugðnar þeim í Vestmannaeyjum. Þar segir Benedikt vera nokkuð þykka móbergsmyndun, sem sé að mestu uppbyggð af sprungnu basalti og liggi ofan á mun þéttara setbergi.
Fyrr í sumar lauk kjarnaborunum við Klifið í Vestmannaeyjum ásamt hafsbotns- og hljóðendurvarpsmælingum milli lands og Eyja. Á næstu vikum verður unnin jarðfræðiskýrsla um þær rannsóknir allar.
Heildarkostnaðurinn við borunina nemur um 200 milljónum króna. Það fjármagn fæst frá sveitarfélögum í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi ásamt fyrirtækjum um land allt, sagði Haraldur Pálsson, framvæmdastjóri Eyjaganga ehf., fyrr í sumar.
Verkfræðistofan Efla og Völuberg munu svo á næstu mánuðum greina gögnin í sameiningu sem ætlað er fyrir árslok að varpa ljósi á tæknilegar og fjárhagslegar forsendur jarðgangagerðar. Norska ráðgjafafyrirtækið Norconsult vinnur einnig sjálfstætt fýsileika- og kostnaðarmat.