Það var bíll við bíl á leiðinni frá Cap Ferret-nesinu á vesturströnd Frakklands í dag. Það var búið að skipa heimamönnum og ferðafólki að yfirgefa svæðið, nálægt þar sem slökkviliðsmenn hafa verið að berjast við Gironde-skógareldana, rétt vestur af Bordeaux.
Um fjörutíu þúsund manns hafa yfirgefið Cap Ferret. Stjórnvöld þar segja að meira en fimmtíu íbúðarhús séu brunnin til kaldra kola og slökkviliðsmenn hafa átt í miklum erfiðleikum með að ná stjórn á eldunum.
Staðan er einnig slæm í kringum Madrid, höfuðborg Spánar, en þar hafa stjórnvöld lýst yfir neyðarástandi vegna illviðráðanlegra skógarelda vestur af borginni. Annars staðar í Evrópu, þar á meðal á Ítalíu, er einnig verið að berjast við skógarelda eftir hitabylgjur síðustu vikna á meginlandinu.