Netárás var gerð á tugi matvöruverslana og verslun IKEA í Belgíu í dag. Hitastig kæli- og frystiskápa var hitað upp úr öllu valdi. Svipaðar árásir voru gerðar í Svíþjóð, Eistlandi og Lúxemborg. Í síðasta mánuði urðu þrjár franskar stórmarkaðskeðjur fyrir netárás með svipuðum hætti.
Matvöruverslanir og IKEA urðu fyrir netárásum
Stórmarkaðskeðjan Carrefour í Belgíu segir netárásina hafa truflað starfsemi í 15 af 700 verslunum. „Þetta er tölvuárás, það er engin önnur ástæða,“ sagði Mich Vergauwen, talsmaður Carrefour.
Delhaize greindi jafnframt frá því að bilun í tölvukerfi hefði haft áhrif á kælibúnað í tugum verslana keðjunnar.
Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar sagði kæli- og frystiskápa í einni af búðum Deilhaize í Bormeerbeek, sem er norðaustur af Brussel, vera tóma. Á þeim hafi verið skilti sem á stóð að vegna tölvuárásar verði ekki boðið upp á neinar kældar eða frystar vörur. „Við biðjumst afsökunar á þessu.“
Tvær aðrar keðjur, Colruyt og Intermarche, hafa einnig sagt AFP að starfsemi þeirra hafi orðið fyrir áhrifum vegna tæknivandamála sem hafi haft áhrif á fimm búðir hjá Colruyt og 15 hjá Intermarche. Hvorug vildi staðfesta að það væri vegna netárásar.
„Í sumum tilfellum var aðeins einn kæliskápur í ólagi þannig að áhrifin voru takmörkuð,“ sagði talsmaður Intermarche. Hann sagði atvikin hafa átt sér stað aðfaranótt mánudags.
Talskona IKEA í Belgíu sagði verslun í Mons í suðvestur Belgíu hafa orðið fyrir netárás. Hitastig í kælum og frystum hafi verið hækkað snemma í morgun.
Þetta hafi verið eina verslun IKEA sem hafi orðið fyrir áhrifum þar sem hún noti annan þjónustuaðila en aðrar verslanir keðjunnar í Belgíu.
Svipar til árása á verslanir í Frakklandi og Hollandi
Netárásin náði ekki aðeins til Belgíu. Sænsku stórmarkaðskeðjurnar ICA og Coop sögðust vera að leita að ástæðu þess að hitastig hækkaði í kælum í búðum þeirra með þeim afleiðingum að matvæli skemmdust.
ICA í Sjöbo á Skáni í Suður-Svíþjóð setti á Facebook-síðu sína að kælar og frystar hefðu orðið fyrir tölvuárás og að hiti þeirra hefði verið hækkaður upp í 50 stig.
„Versta mögulega sviðsmyndin hefur orðið að veruleika.“
Eistneski fjölmiðillinn ERR greindi frá því í morgun að stórmarkaðurinn Selver í Eistlandi hefði einnig orðið fyrir tölvuárás.
Jann Mutso, forstjóri kælitæknifyrirtækisins Kitman Coldtech, sagði í samtali við ERR að einn af viðskiptavinum fyrirtækisins hefði orðið fyrir netárás en að fleiri árásir hefðu átt sér stað.
„Ég veit það ekki nákvæmlega enn þá en aðrir viðskiptavinir í Eistlandi hafa líka orðið fyrir netárásum, ekki aðeins okkar viðskiptavinir.“
Mutso sagði tölvuþrjóta hafa komist inn í stjórnborð tölvu sem keyrði eldri gerð kælikerfis frá Danfoss og hækkað hitastig upp í 50 stig.
Þetta er svipuð aðferð og í tölvuárásum í Frakklandi í síðasta mánuði. Þar urðu yfir 500 verslanir fyrir netárás. Kælikerfin þar voru einnig frá Danfoss.