Áfram er gert ráð fyrir blíðu veðri á morgun á sömu slóðum og hefur verið gott veður í dag, sérstaklega á Suður- og Vesturlandi.
Búast má einnig við ágætis veðri á Norðurlandi og er það helst á austurhluta landsins þar sem búast má við aðeins svalara veðri.
Þetta segir veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson við mbl.is. Hann segist reikna með því að hitinn fari í 19 stig þar sem best lætur á morgun.
„Það sem mestu skiptir er að það er svo hægur vindhraði því þá fær maður miklu meira úr hitanum og sólinni.“
Fólk fékk svo sannarlega að njóta sín í dag í sólinni og náði ljósmyndari mbl.is góðum myndum af fjöldanum sem streymdi í Nauthaulsvík.








