Það myndi kosta um 1,1 milljarð á ári að staðsetja eina af þyrlum Landhelgisgæslunnar á Akureyri að því er fram kemur í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Akureyri.net greinir frá.
Þyrlufloti gæslunnar samanstendur nú af þremur þyrlum. Yrði ein þeirra staðsett á Akureyri þyrfti að bæta þeirri fjórðu við með tilheyrandi kostnaði.
Þriggja ára ferli
„Bráðabirgðaútreikningar Landhelgisgæslunnar gefa til kynna að fastur rekstrarkostnaður þyrlu og starfsstöðvar á Akureyri gæti numið um 1,1 milljarði króna á ári, með fyrirvara um óvissu vegna leiguverðs þyrlu og kjarasamninga áhafna,“ segir í svari ráðuneytisins.
Gera megi ráð fyrir að ferli þess að taka á leigu nýja þyrlu kunni að taka eitt til þrjú ár.
Til viðbótar við árlegan rekstrarkostnað sé áætlaður einskiptiskostnaður um 600 milljónir króna vegna uppbyggingar flugskýlis, sem sé stærsti kostnaðarliðurinn, þjálfunar tveggja nýrra flugmanna, viðhaldsstöðvar á Akureyri og viðbótarbúnaðar fyrir áhöfn og þyrlu.
Tvær þyrlur til taks 95-98% ársins
Í svarinu segir að fjórða þyrlan, og þar með sjöunda áhöfnin, myndi auka verulega getu Landhelgisgæslunnar til að halda uppi viðunandi þyrluviðbragðsgetu á hafsvæðinu umhverfis Ísland.
Í stað þess að hafa tvær þyrlur til taks um 60% ársins eins og nú er megi gera ráð fyrir að tvær þyrlur yrðu til taks 95-98% hluta árs.