Líkt og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan beittu mótmælendur einhvers konar flautum og kölluðu af þingpöllunum.
Ásmundur Rúnar Gylfason, stöðvarstjóri lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu, segir að einhverjum mótmælendum hafi verið vísað út úr þinghúsinu án þess að lögregla hafi komið að því. Laganna verðir séu þó á leið á Austurvöll til þess að athuga aðstæður þar.
Að sögn heimildamanns inni í þinghúsinu eru mótmælendur enn fyrir utan að flauta á þingfund.