Móðir Hönnuh opnar sig um Krýsuvíkurslysið

Sam Large, móðir Hönnuh Jane Large, sem var meðal þeirra þriggja ungmenna sem fórust í slysinu á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags, hefur lýst þakklæti sínu í garð Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, fyrir samúðarkveðju hennar vegna slyssins.
Hannah var ein þeirra þriggja sem létu lífið í hinu hörmulega slysi.
Halla birti færslu á Facebook þar sem hún vottaði fjölskyldum og vinum þeirra sem létust samúð sína.
„Hugur minn er hjá fjölskyldum og vinum þeirra ungu einstaklinga sem létust í hinu hörmulega slysi í nótt sem leið. Engin orð ná utan um slíkan missi. Þegar sorgin knýr dyra með þessum hætti erum við minnt á hversu dýrmætt og viðkvæmt lífið er. Förum varlega og gætum hvert að öðru,“ skrifaði forsetinn.
Sam svaraði færslunni og þakkaði forsetanum fyrir samúðarkveðjuna. Hún sagði dóttur sína, sem var frá Írlandi, hafa verið eitt þeirra sem létust í slysinu.
„Takk fyrir yfirlýsinguna. Dóttir mín, Hannah frá Írlandi, var eitt af fórnarlömbum þessa harmleiks. Hún varð ástfangin af landinu ykkar, hún elskaði fólkið og síðustu dagar hennar voru þeir hamingjusömustu í lífi hennar,“ skrifaði Sam.
Hún sagði það veita fjölskyldunni ákveðna huggun að vita hversu hamingjusöm Hannah hefði verið síðustu daga sína. Fjölskyldan hefði rætt við hana sama kvöld og slysið varð og þá hefði hún verið full af gleði. Jafnframt lýsti hún þeirri miklu sorg sem fráfall Hönnuh hefði valdið fjölskyldunni, ekki síst foreldrum hennar og bróður.