Félags- og húsnæðismálaráðherra segir mjög mikilvægt að verja vegferðina sem farin var 2024. Ef stjórnvöld geti liðkað fyrir því að kjarasamningum verði ekki sagt upp séu þau tilbúin í það. Það sé ávinningur alls samfélagsins að það takist.
Óvissa blasir við á vinnumarkaði
Verðbólgan í ágúst var 5,6 prósent og þar með var ljóst að forsendur kjarasamninga sem voru gerðir 2024 voru brostnar. Til að svo hefði ekki verið hefði verðbólga þurft að mælast 4,7 prósent. Það er því óhætt að fullyrða að mikil óvissa blasi við á vinnumarkaði. Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir stóru aðildarfélögin og stjórnvöld hafa átt í góðu samtali í sumar um hvernig sé hægt að bregðast við. Þá sé sérstaklega horft á húsnæðismarkaðinn sem sé að hans mati langstærsta kjaramálið. Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir að ýmis atriði sem hafi verið fyrirferðamikil í umræðunni hjá aðildarfélögum ASÍ vera atriði sem falli vel að stefnu stjórnvalda og hann sjái í sjálfu sér engar stórar hindranir í þeim efnum.
Brotastarfsemi á vinnumarkaði og húsnæðismál vega þungt
Brotastarfsemi á vinnumarkaði og húsnæðismálin séu afar mikilvægir málaflokkar segir Ragnar Þór. Önnur atriði sem snúi að atvinnulífinu gætu orðið flóknari en þrátt fyrir það vilji hann leyfa sér að vera bjartsýnn. Hann hafi átt í góðu samtali við formenn stétterfélaganna sjálfra og nú sé fyrirhugaður í vikunni fundur í þjóðhagsráði þar sem hann eigi von á að aukinn kraftur verði settur í vinnu tengda kjaramálunum. Það eigi sérstaklega við núna þegar ljóst er orðið að forendur kjarasamninga séu brostnar.
Ávinningur fyrir allt samfélagið að verja vegferðina frá 2024
Aðspurður hvort hann sé bjartsýnn á að hægt verði að koma í veg fyrir upplausn á vinnumarkaði í haust segir Ragnar Þór: „Ég held að það sé bara mjög mikilvægt bæði fyrir atvinnulífið og verkalýðshreyfinguna og stjórnvöld auðvitað líka að verja þessa vegferð sem var farin hér 2024 það er ávinningur fyrir allt samfélagið og alla aðila og ef við getum liðkað fyrir því verkefni þá að sjálfsögðu leggjum við okkur fram við það,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra.