Hátt í 600 ferðamenn eru á meðal þeirra sem er saknað eftir skyndiflóð í Nepal. Þegar hafa 98 fundist látin.
Hamfaraflóð ruddu húsum, brúm og farartækjum á undan sér þegar ár bólgnuðu út á svipstundu. Hundrað hafa þegar fundist látin og óttast er um afdrif mörg hundruð manna.
Erlendir ferðamenn frá 28 löndum
Þar á meðal eru hátt í sex hundruð ferðamenn. 113 eru nepalskir ferðamenn en 466 eru erlendir ferðamenn frá að minnsta kosti 28 löndum.
Í nágrannaríkinu Kína, nánar tiltekið sjálfstjórnarsvæðinu Tíbet, hafa þrír fundist látnir í aurskriðum og á þriðja hundrað er saknað. Yfirvöld í bæði Nepal og Kína hafa tilkynnt að þau sendi fjölmennt björgunarlið á vettvang.
Björgunaraðgerðir standa enn yfir
Enn er óljóst hvað nákvæmlega olli flóðunum. Ein kenning er að snjóflóð hafi valdið því að vatnsborð áa hafi hækkað skyndilega. Upphaflega var talið að jarðskjálfti hafa einnig orðið á svipuðum tíma og flóðin en samkvæmt nýrri greiningu er það ekki rétt.
Að minnsta kosti 114 hefur verið bjargað. Björgunaraðgerðir standa enn yfir en það er tekið að dimma sem gerir björgunarfólki erfitt fyrir.
Engar beiðnir um aðstoð frá Íslendingum
„Engar beiðnir um aðstoð hafa borist borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins frá íslenskum ríkisborgurum vegna náttúruhamfaranna í Nepal,“ segir í skriflegu svari frá utanríkisráðuneytinu.
„Utanríkisráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála og brýnir fyrir íslenskum ríkisborgurum sem kunna að vera á svæðinu að fara í einu og öllu eftir tilmælum viðbragðsaðila og fylgjast með staðbundnum fjölmiðlum.“
Fréttin hefur verið uppfærð með nýjum upplýsingum um fjölda látinna og leiðréttingu á því að jarðskjálfti hafi orðið á sama tíma og flóðin.