Þrettán voru drepnir og tugir særðust í árásum Ísraelshers á suðurhluta Líbanons í gær að sögn heilbrigðisráðuneytis landsins. Konur og börn eru meðal látinna. Ríkisfréttastofa Líbanons segir ísraelskar sprengjuflugvélar hafa gert stórfelldar árásir á bæinn Habboush eftir að Ísraelsher brýndi fyrir íbúum að koma sér brott.
Herinn sagði árásunum beint að liðsmönnum Hezbollah sem hefðu brotið gegn ákvæðum vopnahléssamkomulagsins frá 17. apríl. Ísraelsmenn hafa gert mannskæðar árásir á Líbanon síðan þá og vitna til ákvæða samningsins um að mega bregðast við yfirvofandi eða yfirstandandi árásum.
Hezbollah kveðst hafa gert árásir á ísraelskar hersveitir í gær sem viðbragð við vopnahlésbrotum þeirra. Heilbrigðisráðuneyti Líbanons sagði í gær að 2.600 hefðu týnt lífi í árásum Ísraela síðan 2. mars, þar á meðal 103 heilbrigðisstarfsmenn.