Stjórnvöld á Indlandi hafa lýst yfir þurrkum á þriðjungi Maharashtra sem er auðugasta ríki Indlands. Veðurstofan á Indlandi hefur spáð því að árlegu monsúnregntímabili á Indlandi ljúki án nægilegrar útkomu sem getur haft mikil áhrif á lífsviðurværi bænda.
Veðurstofan bendir á að veðurfyrirbærið El Niño leiðir yfirleitt til minni úrkomu í suðaustur Asíu og óreglulegrar úrkomu.
Stjórnvöld segja að ríkisstjórnin ætli að meta tjón á uppskerunni og tryggja að bændur, landbúnaðarverkafólk og fjölskyldur í dreifbýli fái nauðsynlega aðstoð með góðum fyrirvara.
Um 130 milljónir búa í Maharashtra og þar er mikil landbúnaðarframleiðsla á bómull, sojabaunum, sykurreyr og belgjurtum. Þá hafa yfirvöld í Karntaka-ríki á Suður-Indlandi tilkynnt um aðstoð til bænda á þurrkasvæðum þar, en þar hefur einnig verið lítil úrkoma í sumar.