Bandaríski tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Oliver Tree lést í þyrluslysi í Rio de Janeiro í Brasilíu í gær, 32 ára að aldri. Mikil sorg ríkir meðal vina hans og fylgjenda vegna harmleiksins. Slysið varð með þeim hætti að tvær þyrlur rákust saman. Fimm voru um borð í annarri þyrlunni, Tree þar á meðal, og flugmaður um borð í henni. Allir eru taldir hafa látist samstundis en mikill eldur blossaði upp þegar þyrlurnar skullu til jarðar. Tree var í tónleikaferð um Brasilíu þegar slysið varð.
Mikil sorg eftir dauða Oliver Tree – Vitni lýsir því sem það sá