Norska krónprinsessan Mette-Marit hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir lungnaígræðslu fyrir tæpum mánuði. Í yfirlýsingu frá sjúkrahúsinu segir að heilsa hennar sé góð miðað við aðstæður.
Prinsessan, sem er 52 ára, hefur glímt við illvígan lungnasjúkdóm frá árinu 2018. Næstu sex mánuðir fara í endurhæfingu auk þess sem hún verður í reglulegu eftirliti til að bregðast við mögulegum sýkingum eða ef líkami hennar hafnar gjafalunganu.