Magnús Þór Jónsson, Megas, tónlistarmaður, rithöfundur og myndlistarmaður er látinn, 81 árs.
Magnús Þór, sem tók upp nafnið Megas á námsárum sínum, fæddist í Reykjavík 7. apríl 1945. Foreldrar hans voru Þórunn Elfa Magnúsdóttir og Jón Þórðarson. Hann gekk í Austurbæjarskóla og Menntaskólann í Reykjavík og lauk stúdentsprófi þaðan árið 1965. Megas hélt til Noregs til að stunda nám í þjóðháttafræði við Óslóarháskóla. Hann byrjaði snemma að fást við lagasmíðar og textagerð en teikning átti hug hans einnig. Síðar átti hann eftir að útskrifast frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Megas byrjaði ungur að leika á píanó. Hann samdi mikið og er talið að helstu áhrifavaldar á æskuárum hans hafi verið Halldór Laxness og Elvis Presley og seinna Bob Dylan sem hann gerði útvarpsþætti um. Hann var afar afkastamikill tónlistarmaður, dægurlagahöfundur, rithöfundur og myndlistarmaður.
Fáir hafa skilið eftir sig jafn eftirminnileg lög, texta, myndir og bækur og Megas. Hann hefur í gegnum tíðina unnið með fjölmörgu þekktu og minna þekktu íslensku tónlistarfólki og því markað djúp spor í sögu þjóðarinnar.
Eftirlifandi unnusta Megasar er Margrét H. Blöndal. Megas eignaðist þrjá syni.