Magnús Þór Jónsson, Megas, var jarðsunginn í dag frá Hallgrímskirkju. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir jarðsöng og meðal þeirra sem fluttu tónlist Megasar í athöfninni voru Ragnar Kjartansson, Magga Stína og Ólöf Arnalds.
Kistuna báru synir Megasar, Gísli og Þórður og með þeim þau Sveinn Blöndal, Sölvi Magnússon, Hafþór Ólafsson, Böðvar Björnsson, Oddný Eir Ævarsdóttir og Vala Baldursdóttir.