„Maður skynjaði eitt­hvað brot­hætt en það var hluti af sjarmanum“ - Vísir

„Maður skynjaði eitt­hvað brot­hætt en það var hluti af sjarmanum“ - Vísir

„Maður skynjaði eitt­hvað brot­hætt en það var hluti af sjarmanum“ - Vísir

Eiríkur Guðmundsson starfaði um margra ára skeið á Rás 1 þar sem hann stýrði meðal annars Víðsjá og Lestinni. Þar varð hann einn eftirtektarverðasti útvarpsmaður landsins og vakti athygli fyrir pistla um menningar- og þjóðmál, einstaka rödd sína og gáskafulla, frumlega og oft og tíðum ögrandi nálgun. 

Samhliða störfum sínum í útvarpi vann Eiríkur sem rithöfundur í hartnær tvo áratugi og sendi frá sér fimm skáldsögur, eina ljóðabók og eitt rit um skáldskap Steins Steinarrs. Eiríkur féll frá langt fyrir aldur fram árið 2022, aðeins 52 ára að aldri, eftir að hafa barist við áfengissýki í árabil.

Sjá einnig: Kom við kauninn á valdhöfum og áhrifafólki

Eiríkur skildi eftir sig nokkur handrit sem voru mislangt komin og meðal þeirra var eitt fullunnið verk, bréfaskáldsagan Maríuklefinn, sem kemur út í dag hjá Benedikt bókaútgáfu. Í tilefni af útgáfunni verður haldið Eiríksþing í Eddu í dag þar sem ljósi verður varpað á feril Eiríks sem skáldsagnahöfundar, dagskrárgerðarmanns í útvarpi og fræðimanns.

Eftirmálann að Maríuklefanum ritaði Jón Kalman Stefánsson, vinur Eiríks til áratuga, en blaðamaður ræddi við hann um Eirík, feril hans og nýju skáldsöguna.

Toguðust á miklar andstæður innra með honum

Þegar rætt er um Eirík Guðmundsson er margt hægt að segja um bæði störf hans í útvarpi og skáldskap. Áður en kafað er ofan í skáldskapinn, þessa nýútkomnu bók og önnur verk Eiríks er best að byrja á manninum sjálfum. Hver var Eiríkur Guðmundsson, sem persóna, rithöfundur og útvarpsmaður?

„Það er hægt að gefa ansi langt svar sem yrði aldrei mjög skýrt. Hann var margræð persóna og eins og gerist með höfunda rann oft saman persónan, höfundurinn, skáldið og útvarpsmaðurinn,“ segir Jón um Eirík.

Jón ritar fallegan eftirmála við Maríuklefann um Eirík og verk hans.Vísir/Anton Brink

„Fyrir mig var hann fyrst og síðast vinur og sálufélagi. En það voru líka andstæður í honum. Hann var sérkennileg blanda af mjög miklum intróvert og svo extróvert sem þjóðin kynntist í gegnum útvarpið sérstaklega. Hann hafði talsverð áhrif með sínum pistlum, var afar sterk rödd og djúpgreindur,“ segir Jón.

„Í honum toguðust á þessi ákafi og vilji til að hafa áhrif og láta rödd sína heyrast en svo vildi hann líka fara djúpt inn í einhvern skóg og vera þar í húsi og heyra hvorki í heiminum né láta heiminn heyra í sér.“

Hafði galdur í sínum fórum

Eiríkur var landsþekktur fyrir pistla sína og einstaka rödd. Hvað heldurðu að hafi gert hann svona einstakan sem útvarpsmann og pistlahöfund? Spilaði það saman við skáldskapinn?

„Það spilaði sterkt saman. Pistlarnir voru, í hans huga og hvernig hann nálgaðist þá, ákveðið bókmenntaform. Skáldskapurinn flæddi mjög oft inn í þá og hann notaði mikið beinar og óbeinar tilvísanir í alls kyns skáldskap, sérstaklega ljóð,“ segir Jón.

Eiríkur bjó yfir einstakri rödd.Vísir/Vilhelm

„Hann náði að móta mjög sérstaka rödd sem enginn annar hafði, þar sem fór saman þessi ákafi og þörf til að hafa áhrif, réttlætistilfinning og auðvitað mjög djúpgreind en um leið sterk og góð ályktunarhæfni. Hann náði sem skáld að sjá niður í þjóðfélagsdjúpin og sjá hvað var þar á seyði. Ofan á þetta kom þessi flutningur hans, sem var eiginlega náskyldur tónlist.

Þetta fór allt saman og var oft margræður, fyndinn og alvarlegur texti. Þessi flutningur, sem var viss tónlist, gat haft svo djúp áhrif og sökk svo djúpt inn í þann sem var að hlusta.

„Það var ákveðinn skelmir í honum, helgimyndarbrjótur, þannig að um leið og hann nálgaðist hlutina af alvöru þá notaði hann kæruleysið og íróníuna sem vopn. Í hans meðförum gat hin dýpsta alvara orðið nístandi fyndin og það var einhver galdur sem hann hafði á valdi sínu,“ segir Jón.

Eiríkur ögraði fólki með pistlum sínum.Vísir/Vilhelm

„Það var sama hvernig hann var í skapinu, sama hvernig lífið sneri að honum og hvernig himinninn hallaði að honum, að alltaf þegar hann settist niður við míkrafóninn þá gaf hann sig allan. Maður heyrði það um leið að þátturinn byrjaði. Hann kynnti efnið eins og líf og dauði væru í spilinu og sá sem heyrði kynninguna hugsaði að hann yrði að hlusta og mætti ekki missa af. Það gerði hann svo heillandi og mikilvægan sem útvarpsmann.“

„Skæður sóknarmaður og oft ófyrirleitinn“

Eiríkur og Jón kynntust í háskólanum en þá var Eiríkur hlédrægur og feiminn ungur maður. Feimnin dvínaði gegnum árin samhliða auknu sjálfstrausti og áhrifum en þrátt fyrir það „þá lúrði feimnin, óöruggið og eitthvað undur brothætt ævinlega í djúpunum“ eins og Jón orðar það. 

Hvernig lýsti það sér?

„Ég kynnist honum þegar hann var að byrja í háskólanum og hann lét þá lítið fyrir sér fara. Það voru sex ár á milli okkar og þegar annar er tvítugur og hinn tuttugu og sex þá getur það verið, til að byrja með, svolítið haf en það þornaði og hvarf fljótt,“ segir Jón.

Innra með Eiríki bjó ákveðin óvissa, óöryggi og eitthvað undur brothætt.

„Við kynnumst og erum hópur sem náum fljótt saman, meðal annars með því að spila saman fótbolta í hverri viku. Það þótti mjög ófínt og ekki mikið gáfumerki í bókmenntafræðinni á sínum tíma en við vorum mjög sælir í þessu. Það var gaman að kynnast honum hægt og bítandi sem manneskju og um leið sem fótboltamanni og þar kom fram ný hlið. Hann var skæður sóknarmaður og oft ófyrirleitinn og fallegt hvernig feimnin fór af honum þar,“ bætir Jón við.

„Það var alltaf í honum þetta óöryggi sem varð oft ósýnilegt því hann náði miklu sjálfsöryggi og presens í samfélaginu. Maður sá það alltaf öðru hvoru í vissum aðstæðum og það fór aldrei.“

„Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum og um leið víkkaði hans sýn á heiminn,“ segir Jón.

„Tók hlutverki sínu sem höfundur mjög alvarlega“

Eiríkur hafði sterka sýn á skáldskap og fannst honum ekki gert nógu hátt undir höfði. Eins gat farið um hann hrollur ef hann heyrði minnst á sagnagleði eða sagnagaldur. Þegar skáldsagan Ritgerð mín um sársaukann kom út árið 2018 ræddi Eiríkur við Jakob Bjarnar um skáldskapinn í viðtali á Vísi.

„Skáldskapur er hættulegasti hlutur í heimi. Hann er svo hættulegur að það ætti enginn að koma nálægt honum, og helst ekki lesa alvöru skáldskap. Það er ávísun á glötun,“ sagði Eiríkur í viðtalinu sem einkenndist af skemmtilegri glímu þeirra Eiríks og Jakobs um ýmis viðfangsefni.

„Þetta er náttúrulega dæmigerður Eiríkur að leik, þarna í þessu viðtali. Hann talaði oft svona, að enginn ætti að koma nálægt skáldskap. Þetta var svona leikur með glimt í auga því á sama tíma þá reyndi hann allt til þess að skáldskapurinn tæki sem mest pláss í veruleikanum og heiminum. Hann brann og barðist fyrir því,“ segir Jón.

„En hann gerði sér líka alveg grein fyrir því að viss tegund af skáldskap rennur seint til fjöldans, sem er bara mjög eðlilegt. Honum fannst að skáldskapurinn ætti að vera hættulegur í þeim skilningi að hann ætti að umbylta hugsunum, tilfinningum og viðhorfum fólks. Hann tók hlutverki sínu sem höfundur mjög alvarlega, vildi kanna formið og beita öllum aðferðum til þess að búa til eitthvað nýtt þar.“ 

Eiríkur gaf engan afslátt.Vísir/Vilhelm

Hreinræktaður skáldskapur þar sem frásögnin réði öllu var ekki tebolli Eiríks og honum fannst skáldskapurinn eiga að ögra. Eiríkur var gríðarvinsæll útvarpsmaður en öðlaðist ekki sömu vinsældir fyrir skáldskap sinn. Jón telur ýmislegt hafa valdið, bæði nálgun Eiríks og form skáldskapar hans.

„Í fyrsta lagi er pistlaformið miklu knappara og aðgengilegra og vegna þess að hann flutti það með þessari rödd. Þá var hann að fjalla um efni sem var, hvað á maður að segja, aðgengilegt, oft eitthvað sem fólk þekkti. Svo þegar þú ert kominn í skáldskap þarftu aðeins meiri þolinmæði,“ segir Jón.

„Hann var mikill aðdáandi módernismans og módernísku skáldsögunnar og vildi beita forminu á þann hátt að það yrði hluti af sögunni, nota tungumálið og stílinn til þess að ögra, koma á óvart eða stækka formið. Sú nálgun ein og sér er þannig að það heltast alltaf nokkrir úr lestinni og ekkert að því.“ 

Entist ekki aldur til að komast þangað sem hann ætlaði sér

Oft liðu mörg ár á milli skáldsagna Eiríks vegna þess að hann var á fullu í útvarpinu og tók sér stopul frí til að vinna að skáldskapnum. „En ég held að hann hafi verið á einhverri leið sem hann náði ekki að klára, enda 52 ára þegar hann fellur frá. Síðustu tvö árin er hann svolítið óvirkur út af áfenginu,“ segir Jón.

„Þessar skáldsögur hans skiptu mig miklu máli, en í dag les ég þær svona eins og maður setur plötu á fóninn og hlustar á tvö lög. Ég les þær þannig, ekki frá a til ö og þeirra helsti styrkur var ekki heildin heldur ákveðin glóandi brot og ævintýri,“ bætir hann við.

Jón Kalman og Eiríkur á góðri stundu.

„Hann var á leiðinni eitthvert með skáldsöguna og náði ekki að komast þangað sem hann ætlaði að fara, honum entist ekki aldur til þess. Auðvitað vildi hann ná til margra, skipta máli og hafa áhrif en hann var ekki tilbúinn til að veita afslátt af sinni fagurfræði til þess að ná þeim árangri.“

„Hann hefði aldrei slegið af sínum innri kröfum til þess að ná þeim árangri. Þótt Eiríkur í pistlunum og Eiríkur í skáldsögunum séu meira og minna sami maðurinn þá eru formin bara svo gríðarlega ólík.“

Lá í skúffunni í mörg ár 

Maríuklefinn kemur út í dag, fjórum árum tæpum eftir andlát Eiríks, en hafði þó legið lengi tilbúinn í skúffu hjá honum. Bókin var skrifuð fyrir um tuttugu árum og var tilbúin til útgáfu, í einhverjum skilningi, skömmu síðar. 

Af hverju heldurðu að hún hafi legið svona lengi óútgefin?

„Þegar ég og Einar Falur erum að fara í gegnum hans gögn og eigur finnum við slatta af alls konar pappírum og uppkasti að hinu og þessu, meðal annars þessu handriti, og einhverjar umsóknir til launasjóðsins,“ segir Jón.

Eiríkur sat lengi á bókinni.Vísir/Vilhelm

Eiríkur hafi nefnt bókina í umsóknum til Launasjóðs rithöfunda bæði árið 2006 og 2014 og í seinna skiptið sagt að handritið væri langt komið. Hvort það hafi verið tilbúið þá eða hann einfaldlega sagt það vegna umsóknarinnar er þó ómögulegt að vita.

„Þá er þetta nú þegar orðið tíu ára gamalt handrit og Eiríkur var þannig höfundur að hann hefði aldrei tekið tíu ára gamalt handrit og gefið það út. Hann er annar höfundur en tíu árum áður, þannig að eðli málsins samkvæmt hefði hann breytt einhverju,“ segir Jón.

Þegar Jón var að undirbúa sig fyrir Eiríksþingið í dag rak hann augun í gamla lesskýrslu í tölvu sinni þar sem kom í ljós að hann hafði lesið handritið, sem þá hét Bréf til Maríu, fyrir Eirík einhvern tímann fyrir 2005. „Þá er ég með einhverjar tillögur um breytingar og hún er greinilega aðeins öðruvísi,“ segir Jón um Maríuklefann.

Hikaði því hann vildi vinna meira í handritinu

Eiríkur gaf út bréfaskáldsöguna 39 þrep til glötunar árið 2004 og var formið keimlíkt formi Maríuklefans. Jón telur að Eiríkur hafi ekki viljað endurtaka sig og því beðið með útgáfu hennar.

„Hann var að einbeita sér að skáldsögunum og mig grunar að hann hafi dreymt um það að taka þetta, leysa þetta úr læðingi bréfaskáldsögunnar og gera þetta að skáldsögu. Þess vegna hafði hann hikað við að gefa þetta út, hann vildi vinna þetta betur,“ segir Jón.

Á fótboltavellinum hvarf feimni Eiríks.Vísir/Anton Brink

„Þetta var gamalt efni og hann var meira spenntur fyrir því sem hann var að gera þá á þeim tíma, eðlilega sem höfundur, þannig hann ýtti þessu á undan sér meðan hann var að vinna að öðru. Þetta var bara spurning um hvenær hann hefði gefið þetta út og hann sagði í umsókn sinni að hann vildi að þetta yrði hluti af sínu höfundarverki,“ bætir hann við.

„En við munum aldrei vita hversu miklu hann hefði breytt. Það er bara eitthvað sem maður getur getið sér til um. En mér finnst þetta standa fullkomlega sem tilbúið verk.“

„Við fáum óvænt Eirík til baka sem ungan höfund“

Maríuklefinn ber mörg skáldskapareinkenni Eiríks: sóknarboltann, leik hans með mörk skáldskapar og raunveruleika og vísanir þvers og kruss. Portúgal er síðan alltumlykjandi í bókinni en Eiríkur var mjög upptekinn af landinu og portúgölskum skáldskap og var oft kallaður Figo af vinum.

Hvað gerir þessa bók merkilega fyrir utan allt sem viðkemur útgáfu hennar?

„Við fáum þarna Eirík áður en hann skrifar sínar skáldsögur. Við fáum óvænt Eirík til baka sem ungan höfund sem er orðinn ótrúlega mótaður stílisti en áður en hann fer að glíma við skáldsagnaformið,“ segir Jón.

Kápa Maríuklefans er prýdd ljósmynd af húsi, sennilega í Lissabon.

Skáldsagan einkennist af ærslum og leik og sé aðeins nær pistlaforminu en skáldsögunni „Hún er út af fyrir sig merkileg og skemmtileg en líka mikilvægt púsl í hans höfundarverk og feril,“ segir Jón.

Fjögur ár eru liðin frá andláti Eiríks, þetta síðasta verk bætist í höfundarverk hans í dag og svo fer fram Eiríksþing í Eddu þar sem farið verður yfir feril Eiríks. Því veltir maður fyrir sér hvort hægt sér að skilgreina á einhvern hátt þetta höfundarverk sem Eiríkur skilur eftir sig.

„Hans höfundarverk og erindi er eitthvað sem við munum vera að átta okkur á næstu árin. Þannig er það alltaf með höfunda, það er tíminn sem leiðir það í ljós hvert þeirra erindi var,“ segir Jón.

„Erindi hans var margþætt en maður skilur ekki sundur Eirík og skáldskapinn. Hann vildi ekki gangast við því í blaðaviðtali, því hann vildi aldrei láta negla sig niður og vildi vera óútreiknanlegur sem hann að vissu leyti var, en hann vildi fyrst og fremst láta það sem hann skrifaði tala fyrir sig,“ bætir hann við.

„Hans erindi var í skáldskapnum og var það að breyta hugsunum okkar og skynjunum og umbylta hlutum innra með okkur. Hann vildi gera það með hinum óvænta og óútreiknanlega krafti skáldskaparins.“

Hugsarðu oft til hans?

„Á hverjum degi, held ég. Hann er alltaf sínálægur, bæði í því sem maður gerir og í daglegu lífi,“ segir Jón að lokum.

#brothætt #eitthvað #maður #skynjaði #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262929542d/-madur-skynjadi-eitt-hvad-brot-haett-en-thad-var-hluti-af-sjarmanum-

📰 Aðrar fréttir

Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 1
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
Yfirvöld í Kanada lýsa alvarlegu atviki sem leiddi til stórbruna í herstöð í Alberta sem stórslysi. Stjórnvöld hafa staðfest að nokkrir séu látnir og ...
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
Þetta segir hinn þrítugi tónlistarmaður Elvar Smári Júlíusson um nýju plötuna sína Hver og einn verður að ráða sínumnæturstað sem kom út 9. október en...
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
Greint hefur verið frá því að um 1.800 manns hafi verið handtekin á mótmælunum víða um Frakkland og um 500 lögreglumenn og slökkviliðsmenn séu slasaði...
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gr...
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
📅 18.10.2026 👁️ 1
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar í Facebook-færslu eindregið við því að fólk verði á ferðinni á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs í kvöl...
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
Bæði Isavia innanlandsflugvellir ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vara við áformum sem felast í tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir hinn svokal...
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
📅 18.10.2026 👁️ 1
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
Maðurinn sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi. Hann var á ferð með hó...
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.  Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast...
„Ég elska Obbu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
„Ég elska Obbu“ - Vísir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, var í ítarlegu viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi...
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill að borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15. Þetta segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar segir hún að m...
Upplausn andsetinna stjórnvalda
📅 18.10.2026 👁️ 2
Upplausn andsetinna stjórnvalda
Upplausn andsetinna stjórnvalda Throstur18. október 2026InnlendarLeave a Comment Andsetið Alþingi Þröstur Jónsson ritar að austan. Upplausn og villigö...
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
📅 18.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin slóu í gegn á sínum tíma með ódauðlega persónu Georgs Bjarnfreðarsonar í forgrunni sem Jón Gnarr gæddi ævarandi ...
Parisians wake up to protest damage and looted shops
📅 18.10.2026 👁️ 2
Parisians wake up to protest damage and looted shops
Violence broke out across France on Saturday during the latest day of demonstrations against conditions in schools and the cost of living.
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
Í Facebook-færslu segir slökkviliðið að 89 útköll á sjúkrabíla hafi verið skráð. Útköll á dælubíla voru þá sjö talsins og þar af þrjú vegna roktjóns. ...
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
📅 18.10.2026 👁️ 0
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
Buggy safari operators in Lanzarote face police checks after Teguise’s mayor admitted the council could not confirm whether companies using local rura...
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
En fyrst verður fjallað um vantraust og stífni í samskiptum ríkis og sveitarfélaga með Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í Garðabæ og nýkjörnum formann...
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
📅 18.10.2026 👁️ 2
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
Í útjaðri Þingholtanna í Reykjavík gætir fréttnæmrar frjósemi. Í garði leikskólans Laufásborgar, hefur stærðarinnar tré, hrossakastanía, myndað aldin ...
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
📅 18.10.2026 👁️ 2
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
The Green Party leader said, while he wanted to amend it, the motion would stand until 2028.
„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir
Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yf...
Auðmýkt
📅 18.10.2026 👁️ 3
Auðmýkt
Auðmýkt Eitt helsta ein­kenni nútíma­mann­eskj­unnar er að vita allt best. Eitt helsta ein­kenni nútím­ans er upp­lýs­inga­óreiða, og eitt helsta ein­...
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur beint því til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að sjá til þess framvegis að sakborningar fái úthlutað þeim verje...
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 3
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
Brian May received a surprise honour for his environmental and conservation work as Starmus opened in Santa Cruz de Tenerife last night, Saturday 17th...
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
📅 18.10.2026 👁️ 3
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
Around 1,800 people were arrested after nationwide protests saw outbreaks of violence and vandalism.
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
📅 18.10.2026 👁️ 2
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
The flying instructor has been described as "a gentleman and an experienced aviator" by former students.
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
📅 18.10.2026 👁️ 3
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í sjö útköll í gær og í nótt, þar af að minnsta kosti þrjú vegna roktjóns. Þá var slökkvilið kallað út vegna vatns...
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
„Ég fer í reglubundna skimun í nóvember á síðasta ári,“ segir Sólveig Jónsdóttir, sem greindist með brjóstakrabbamein í maí. „Það sést ekki neitt og a...
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
Lögregla rannsakaði þrettán mansalsmál í fyrra en fékk ábendingar um og kannaði 76 til viðbótar. 44 mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar. Breskur sérf...
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 3
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
Three motorcyclists were taken to hospital after a collision involving their bikes and a car in south Tenerife yesterday (Saturday), at 12.45pm on the...
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
Gamanmyndin Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum 18. október 1986 og fagnar því fertugsafmæli í dag en í tilefni dagsins greinir Borgarle...
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum Fjölskyldan á góðri stunduBaxter lést aðeins fjögurra ára gamall Mynd: Instagra...
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent fore...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 3
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu Hamarsbraut 4 Bjart og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í hjarta Hafnarfjarðar er ...
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum Fréttin18. október 2026InnlendarLeave a Co...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 3
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósam...
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 3
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 3
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
📅 18.10.2026 👁️ 3
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
Yvette Cooper also announces £140m investment in England's urgent care system, ahead of winter.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 3
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...