Tónlistarkonan Madonna er orðin 67 ára en er alls ekki sest í helgan stein hvorki þegar kemur að vinnu né ástarlífi. Á dögunum var hún beðin um að nefna besta elskhugann en hún vildi bara gefa þeim látnu einkunn.
Madonna er að gefa út plötuna Confessions II og fór óvenjulega leið til að kynna plötuna að þessu sinni en hún er í samstarfi við stefnumótaforritið Grindr. Þar fékk hún nokkra þekkta menn til að taka viðtal við sig, þar á meðal hönnuðinn Raul Lopez sem spurði hana út í ástarlífið að því fram kemur á vef Page Six.
„Ég ætla aðeins að nefna látið fólk,“ sagði Madonna þegar hún var spurð út í besta bólfélagann. Hún hvíslaði svo nafn John F. Kennedy Jr. en svar hennar vakti mikla athygli.
Madonna og John F. Kennedy Jr. voru að hittast um tíma seint á níunda áratug síðustu aldar. Þau hittust fyrst þegar Madonna var gift Sean Penn og Kennedy var að hitta fyrirsætuna Christinu Haag. Seinna kvæntist Kennedy Carolyn Bassette en þættir um þau hafa verið vinsælir að undanförnu en hann lést árið 1999.
