Síðasti opnunardagur Kjötborgar á Ásvallagötu í Vesturbæ Reykjavíkur verður laugardagurinn 20. júní.
Frá þessu var greint á Facebook-síðu verslunarinnar í dag.
Verslunin hefur verið starfrækt á Ásvallagötu 19 síðan árið 1981 en bræðurnir Gunnar og Kristján Jónassynir, sem hafa sinnt rekstri verslunarinnar í 40 ár, ákváðu nú í vor að hætta rekstri verslunarinnar og selja húsnæðið.
Kaffihús opnar í rýminu
Nokkrar fjölskyldur í Vesturbænum hafa fest kaup á húsnæðinu og hyggjast opna þar kaffihús en fjölskyldurnar vilja að rýmið nýtist áfram til samfélagsmiðaðs reksturs.
Í færslunni er greint frá dagsetningu síðustu opnunarinnar og eru viðskiptavinir hvattir til að kíkja við, versla sér eitthvað sniðugt í síðasta sinn og kveðja þannig verslunina með stæl.
Vilja bræðurnir nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa lagt leið sína í verslunina í gegnum áratugina en verslunin hefur verið afar vinsæl meðal Vesturbæinga alla tíð.