Lögreglan þurfti að veita fullum ökumanni eftirför

Lögreglan þurfti að veita fullum ökumanni eftirför

Lögreglan þurfti að veita fullum ökumanni eftirför

Lögreglumótorhjól
Lögreglumaður að störfumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Lögreglan hafði í nógu að snúast frá klukkan 17:00 síðdegis til klukkan 05:00 í morgun. Samkvæmt dagbók lögreglu voru alls 105 mál bókuð í kerfum embættisins á tímabilinu.

Meðal verkefna lögreglu var útkall vegna ökumanns sem hafði ekið bifreið sinni út af vegi og á stein skammt frá akbraut. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna auk þess að hafa verið sviptur ökuréttindum.

Lögreglu barst einnig tilkynning um slagsmál ungmenna. Eitt ungmenni var flutt á lögreglustöð þar sem foreldrar sóttu viðkomandi síðar.

Í miðborg Reykjavíkur voru tveir menn handteknir eftir að tilkynnt var um ógnandi hegðun þeirra. Samkvæmt lögreglu þurfti að beita lögreglutökum allt þar til mennirnir voru komnir í fangaklefa vegna ástands þeirra.

Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Einn þeirra reyndist bæði án ökuréttinda og á ótryggðri bifreið. Annar ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna og reyndist einnig sviptur ökuréttindum. Báðir voru látnir lausir að lokinni sýnatöku.

Lögregla hafði jafnframt afskipti af fjölda ökumanna vegna hraðaksturs. Einn ökumaður mældist á um 129 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Annar var stöðvaður á 97 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 50 km/klst og sá þriðji ók á 118 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Þá voru fleiri ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur.

Í einu tilviki reyndi ökumaður að komast undan lögreglu og hófst eftirför. Ökumaðurinn náðist eftir stutta eftirför og var handtekinn á vettvangi. Við athugun kom í ljós að hann var ölvaður og á yfir höfði sér kæru vegna fjölmargra umferðarlagabrota.

#fullum #lögreglan #veita #ökumanni #þurfti


Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/logreglan-thurfti-ad-veita-fullum-okumanni-eftirfor/

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260