Lögreglustjórinn á Suðurlandi keypti á síðasta ári nokkrar úlpur fyrir lögreglumenn í gegnum netmarkaðinn AliExpress þegar sambærilegur fatnaður fékkst ekki hjá hefðbundnum birgi embættisins.
Í svörum Gríms Hergeirssonar, lögreglustjórans á Suðurlandi, og embætti Ríkislögreglustjóra kemur fram að úlpurnar hafi verið lagervara hjá söluaðila sem gripið var til þegar samningar um lögreglufatnað voru ekki í gildi og viðurkenndir birgjar gátu ekki afhent nauðsynlegan búnað.
Athygli vekur þó að samkvæmt svörum embættanna kemur skýrt fram að úlpurnar hafi ekki verið merktar neinum framleiðanda og liggur því ekki fyrir hver hafi framleitt þær.
Ríkislögreglustjóri ítrekar að hvert lögregluembætti sé sjálfstætt í ákvörðunum um kaup á búnaði og að embættið hafi ekki komið að umræddum innkaupum.
Lesa má nánar um málið á bls.4 í Morgunblaðinu í dag