Lögregla var með aðgerðir í Skipholti 9 í dag. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvað þar sé um að vera en á myndum frá vettvangi má sjá að rúða í hurð hússins er brotin. Húsið er merkt Art Ak, sem er listagallerí og vinnustofa samkvæmt Google.
Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.