Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að frumvarpsdrögin feli í sér margháttaðar umbætur á náttúruverndarlögum og lúti meðal annars að uppbyggingu innviða, landtöku farþega á friðlýstum svæðum og skýrari heimildum til friðlýsingar og friðunar í hafi. Þar séu jafnframt lagðar til breytingar sem snúa að úrræðum stjórnvalda til viðbragða við ólögmætum utanvegaakstri.
Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafi lýst því yfir síðasta sumar, eftir að ferðamenn voru staðnir að grófum og ítrekuðum utanvegaakstri, að taka þyrfti miklu fastar á slíkum brotum.
Í frumvarpsdrögunum sé lagt til að Náttúruverndarstofnun verði heimilt að annast nauðsynlegar úrbætur á verulegum náttúruspjöllum vegna utanvegaaksturs og krefja þann sem veldur spjöllunum um kostnað við úrbæturnar, svo sem við að afmá jarðrask, lagfæra gróðurskemmdir og draga að öðru leyti úr áhrifum brotsins.
Jafnframt sé lagt til að lögregla fái heimild til tímabundinnar haldlagningar ökutækja til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot eða frekari spjöll en í dag sé einvörðungu hægt að gera ökutæki upptækt með dómi. Loks sé lagt til að viðurlög vegna brota sem valda alvarlegum náttúruspjöllum verði hert og samræmd viðurlögum samkvæmt öðrum lögum á þessu sviði.
„Þetta snýst um að passa upp á Ísland. Ólögmætur utanvegaakstur er óþolandi og á ekki að líðast. Þess vegna þurfa stjórnvöld að hafa raunhæf úrræði til þess að taka fastar á skussunum og senda þeim reikninginn vegna tjónsins sem þeir valda. Og þegar ökumenn hlýða ekki fyrirmælum verður lögregla að geta haldlagt ökutæki strax og komið þannig í veg fyrir frekari brot. Um þetta snúast lagabreytingarnar,“ er haft eftir ráðherra.