Líst ekki á breytingar Ingu á úti­vistar­tíma barna að vetri - Vísir

Líst ekki á breytingar Ingu á úti­vistar­tíma barna að vetri - Vísir

Líst ekki á breytingar Ingu á úti­vistar­tíma barna að vetri - Vísir

Samkvæmt núverandi reglum mega nú börn, 12 ára og yngri, vera úti til 20 en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00.

Samkvæmt lögum má bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum/forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, birti í sumar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002, sem varðar útivistartíma barna.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kom fram að efni frumvarpsins hefði áður verið kynnt sem hluti af drögum að frumvarpi til nýrra heildarlaga um barnavernd sem lagt var fram á 157. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Í samræmi við nefndarálit meiri hluta velferðarnefndar Alþingis hefði þessi hluti í sumar verið kynntur í sérstöku frumvarpi og óskað eftir samráði við börn og aðra hluteigandi.

Í drögunum var lagt til að útivistartími barna á aldrinum 10–12 ára yrði lengdur um eina klukkustund yfir vetrartímann og jafnframt lagt til að börn níu ára og yngri megi vera úti til klukkan 20.00 og að reglur fyrir börn á aldrinum 13–16 ára verði áfram miðaðar við klukkan 22.00. Jafnframt er lagt til að yngsti aldurshópurinn taki til barna níu ára og yngri.

Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, og Steinn Jóhannesson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, skrifa undir umsögn Reykjavíkurborgar. Vísir/Ívar Fannar

Einnig var lagt til að sumartími reglnanna gildi frá 1. júní til 1. september í stað þess að hefjast 1. maí. Markmiðið með því er, samkvæmt tillögu, að tengja reglurnar betur við skólaárið.

Sumartíminn styttur

Fimmtán sendu umsögn í samráðsgátt vegna málsins en samráði lauk í síðustu viku, þann 28. ágúst. Meðal þeirra sem sendu inn umsögn eru foreldrar en einnig Reykjavíkurborg, Þroskahjálp, Saman-hópurinn, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Bandalag íslenskra skáta og KFUM og KFUK.

Í umsögn Reykjavíkurborgar kemur fram að þau leggist gegn því að útivistartími barna á aldrinum 10 til 12 ára verði lengdur að vetrartíma og vísa til forvarnargildis útivistartímans eins og hann er í dag.

„Þegar litið er til forvarna er ekki tilefni til að breyta útivistartíma barna á þessum aldri, enda fer skipulagt íþrótta- og tómstundastarf almennt ekki fram á þessum tíma dags. Með breytingunni er því verið að lengja þann tíma sem börn geta verið á almannafæri án eftirlits fullorðinna, sem getur aukið líkur á áhættuhegðun,“ segir í umsögninni.

Þá er einnig vísað til þess að breytingin geti flækt reglurnar sem hafi verið þær sömu um árabil og fólk þekki vel. Samstaða foreldra hafi verið byggð á sameiginlegum viðmiðum um útivistartíma. Í umsögn borgarinnar segir að ef markmiðið eigi að vera að auka útiveru barna sé óljóst hvers vegna sú útivera þurfi að eiga sér stað síðla kvölds.

„Reykjavíkurborg styður aukna útiveru barna en telur eðlilegra að hún fari fram á tímum þegar skipulagt starf stendur til boða og þegar það samræmist betur þörfum barna fyrir hvíld og reglubundna daglega rútínu,“ segir í umsögn borgarinnar.

Neikvæð áhrif á svefn

Þar er einnig fjallað um svefn barna og að breytingin gæti haft neikvæð áhrif á svefn þeirra. Þá benda samtökin á að ekki liggi fyrir hvaða áhrif breytingin geti haft á öryggi og velferð barna og því leggist þau gegn tillögunni.

Borgin styður hins vegar tillögu um að sumarútivistartími taki gildi í júní en ekki maí og fylgi þannig skólaárinu betur. Þá telur borgin það einnig góða breytingu að aldursmörk miði við 1. júní en ekki fæðingarár.

Reglur um útivist hafa verið þær sömu frá um 1992.

Saman-hópurinn leggst einnig gegn breytingunum og telur það einnig jákvæða breytingu að sumarútivistartími hefjist í júní en ekki maí.

„Ekki er sýnilegur ávinningur af breytingunni fyrir börnin, hvorki út frá heilsu, forvörnum né félagsfærni. Þá liggur ekki fyrir að foreldrar eða fagaðilar hafi óskað eftir breytingunni,“ segir í umsögn þeirra.

Í umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er sérstaklega minnt á svefnþörf barna og að fyrirhuguð breyting stytti mögulegan svefnglugga þeirra.

„Löggjöf sem ætlað er að styðja velferð og hvíld barna ætti að endurspegla raunverulega svefnþörf þeirra. Fíh getur því ekki mælt með því að útivistartími 10–12 ára barna verði lengdur um eina klukkustund að vetri til. Núgildandi fyrirkomulag tekur þegar tillit til heimferðar úr skóla-, íþrótta- og frístundastarfi. Jafnframt leggur Fíh til að upplýsingar um útivistartíma barna verði ávallt kynntar samhliða ráðleggingum um svefnþörf þeirra,“ segir í umsögn hjúkrunarfræðinga sem fagna því, eins og aðrir, að samræma eigi útivistartímann betur skólaárinu með því að færa sumarútivistartíma til 1. júní.

Margir fagna því að samræma eigi útivistartímann betur skólaárinu. Vísir/Anton Brink

Útivistartími samræmdur skólaárinu

Í umsögnum foreldra með tillögunni eru einhverjir sem telja að varlega eigi að fara í breytingar á meðan aðrir fagna því sérstaklega að samræma eigi útivistartímann betur skólaárinu.

„Sem foreldri tveggja grunnskólabarna á aldrinum 9–12 ára fagna ég þessari breytingu og vona að hún fari í gegn en breytingin myndi draga úr togstreitu sem hefur skapast í breyttri samfélagsmynd. Þá vonast ég eftir að stjórnvöld kynni breytinguna vel svo að allir foreldrar séu upplýstir um að um barnaverndarlög sé að ræða en ekki vinsamleg tilmæli stjórnvalda,” segir Eydís Inga Sigurjónsdóttir.

„Sem kennari til tæplega 40 ára fagna ég því að verið sé að færa sumarútivistartímann til 1. júní, því sjáanlegur munur er á þreytu barnanna þegar þetta gerist. En að lengja útivistartíma á veturna finnst mér ekki góður kostur. Mörg börn vinna ekki heimavinnuna og lestur fyrr en á kvöldin og er þetta þá að seinka því um klukkustund. Þetta kemur líka til með að auka aðsókn þessa hóps að sundstöðum á þessum tíma,” segir Elín Þóra Stefánssondóttir, kennari.

Geri lögreglu erfiðara fyrir

Kjartan Kjartansson bendir í sinni umsögn á að viðbragð lögreglu vegna barna sem hverfa af heimilum sínum geti tafist verði útivistartíminn lengdur.

„Þó að foreldrar viti af börnum sínum inni á öðru heimili (t.d. með GPS í síma) en þar er ekki dyrabjöllu svarað og ekki komið til dyra, þá yrði lögreglu óheimilt að sækja barnið þangað fyrr en eftir að löglegum útivistartíma þess væri lokið, því að barnið hefur löglega heimild til útivistar. Þessi breyting mun því hafa bein áhrif á getu foreldra og lögreglu til að takast á við vanda barna og rýra verulega getu þeirra til að grípa inn í óæskilega og óheilbrigða hegðun,“ segir í umsögn Kjartans.

Í tilkynningu frá lögreglunni um breyttan útivistartíma í vikunni kom fram að útivistarreglurnar séu samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim sé, meðal annars, ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin sé einstaklingsbundin en þó megi ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu. Mikilvægt sé að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felist meðal annars að ganga úr skugga um að þau séu ekki í símanum eða tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.

#breytingar #ekki #ingu #líst #útivistartíma

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262929484d/list-ekki-a-breytingar-ingu-a-utivistartima-barna-ad-vetri

📰 Aðrar fréttir

Ólympíufari opnar sig um áralanga baráttu við klámfíkn: „Þetta gjörsamlega braut mig niður“
📅 03.09.2026 👁️ 0
Ólympíufari opnar sig um áralanga baráttu við klámfíkn: „Þetta gjörsamlega braut mig niður“
Breski Ólympíufarinn Freddie Woodward hefur opnað sig um áralanga baráttu við klámfíkn sem hann segir hafa haft áhrif á sjálfstraust sitt, einbeitingu...
Tveir táningar drepnir á Vesturbakkanum
📅 03.09.2026 👁️ 1
Tveir táningar drepnir á Vesturbakkanum
Ísraelskir hermenn drápu tvo drengi í Al-Mughayyir-þorpinu, norðaustur af Ramallah, í nótt. Annar var 16 ára og hinn 19 ára.Ísraelsher réðst inn í þor...
Víð­áttu­mikil lægð fyrir sunnan land - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Víð­áttu­mikil lægð fyrir sunnan land - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir að á morgun muni lægðardrag teygja sig yfir landið. Át...
Watch: BBC travels in self-driving Uber around London
📅 03.09.2026 👁️ 1
Watch: BBC travels in self-driving Uber around London
The BBC's Zoe Kleinman takes a ride on Uber's self-driving robotaxi as the service rolls out on Thursday.
All hvasst syðst á landinu
📅 03.09.2026 👁️ 1
All hvasst syðst á landinu
Norðaustan- og austanátt blæs um landið í dag, miskraftmiklar. Hvassast verður syðst á landinu þar sem búast má við allhvössum vindstrengjum fram yfir...
„Maður skynjaði eitt­hvað brot­hætt en það var hluti af sjarmanum“ - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
„Maður skynjaði eitt­hvað brot­hætt en það var hluti af sjarmanum“ - Vísir
Eiríkur Guðmundsson starfaði um margra ára skeið á Rás 1 þar sem hann stýrði meðal annars Víðsjá og Lestinni. Þar varð hann einn eftirtektarverðasti ú...
Er hægt að kaupa hamingju fyrir ís­lenskar krónur? - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 0
Er hægt að kaupa hamingju fyrir ís­lenskar krónur? - Vísir
Ein er sú hugmynd sem kann að vera þeim hópi haldreipi í vonbrigðum sínum: Hamingju er hvort eð er ekki hægt að kaupa fyrir peninga. Svo getur þó veri...
AEMET warns of more heat this Thursday in the Canary Islands
📅 03.09.2026 👁️ 1
AEMET warns of more heat this Thursday in the Canary Islands
Temperatures are set to rise across the Canary Islands today (Thursday), with highs reaching 30°C in Tenerife and 32°C in parts of Gran Canaria and Fu...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Úrslitin kalla á ný ráð til að halda sama plani
📅 03.09.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson skrifar: Úrslitin kalla á ný ráð til að halda sama plani
Mynd Hafi eitthvað verið ljóst fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna var
MoD withheld information about nuclear test veterans' records, ex-minister claims
📅 03.09.2026 👁️ 1
MoD withheld information about nuclear test veterans' records, ex-minister claims
Cold War veterans who oversaw nuclear tests have claimed they caused lifelong health problems.
NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gá­leysi Rússa - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gá­leysi Rússa - Vísir
„Leipzig markar nýja stigmögnun á yfirráðasvæði Evrópusambandsins sem rekja má beint til Rússlands,“ sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastj...
Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri - Vísir
Samkvæmt núverandi reglum mega nú börn, 12 ára og yngri, vera úti til 20 en 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Samkvæmt lögum má...
Passenger vomiting and fainting forces diversion for flight to the Canary Islands
📅 03.09.2026 👁️ 1
Passenger vomiting and fainting forces diversion for flight to the Canary Islands
A Binter flight heading to Gran Canaria was forced to make an unscheduled diversion after a passenger became seriously unwell, suffering repeated vomi...
Eitraður reykjar­mökkur veldur vand­ræðum í Suðaustur-Asíu - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Eitraður reykjar­mökkur veldur vand­ræðum í Suðaustur-Asíu - Vísir
Ástandið er einna verst í borginni Banjarbaru í Indónesíu þar sem skólum hefur meðal annars verið lokað vegna mengunarinnar. Kennari í borginni sagði ...
Eldur í þaki Rima­skóla í nótt - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Eldur í þaki Rima­skóla í nótt - Vísir
„Eldurinn í Rimaskóla byrjaði í millilofti og færðist yfir þakklæðingu og þakkant,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðbo...
Watch: Drop in small boats crossings forces smugglers to adapt
📅 03.09.2026 👁️ 1
Watch: Drop in small boats crossings forces smugglers to adapt
A BBC investigation has found smuggling gangs are running low on small boats, forcing rival gangs to work together and load more migrants on larger bo...
Watch: BBC witnesses 'taxi boat' picking up migrants multiple times in a day

78-year-old swimmer found dead off Lanzarote coast after major search operation
📅 03.09.2026 👁️ 1
78-year-old swimmer found dead off Lanzarote coast after major search operation
A 78-year-old man has been found dead in the sea off Lanzarote after an extensive search was launched when he failed to return from a swim. Emergency ...
Hvíta húsið sagt hafa þrýst á geimferðafyrirtæki að hunsa ráðstefnu í París
📅 03.09.2026 👁️ 1
Hvíta húsið sagt hafa þrýst á geimferðafyrirtæki að hunsa ráðstefnu í París
Hvíta húsið er sagt hafa lagt hart að bandarískum geimferðafyrirtækjum að hafna boði Emmanuels Macron Frakklandsforseta um að mæta á umfangsmikla tveg...
Þjófnaður í þremur verslunum - Vísir
📅 03.09.2026 👁️ 1
Þjófnaður í þremur verslunum - Vísir
Ekki kemur fram nánari staðsetning en lögregla á stöð 1 sinnir verkefnum í Austurbær-Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes, stöð 3 í Kópavogi og Breiðholti o...
El Nino 'supersized' as countries race to prepare for extreme weather, UN warns
📅 03.09.2026 👁️ 1
El Nino 'supersized' as countries race to prepare for extreme weather, UN warns
The WMO has warned that the natural weather phenomenon could bring disruption to global economies.
El Niño 'supersized' as countries race to prepare for extreme weather, UN warns
📅 03.09.2026 👁️ 1
El Niño 'supersized' as countries race to prepare for extreme weather, UN warns
The WMO has warned that the natural weather phenomenon could bring disruption to global economies.
Varnarmálaráðherra segir af sér vegna mikils klúðurs við skotfærapöntun
📅 03.09.2026 👁️ 1
Varnarmálaráðherra segir af sér vegna mikils klúðurs við skotfærapöntun
Varnarmálaráðherra Eistlands, Hanno Pevkur, sagði af sér í gær vegna rannsóknar á ástæðum þess að skotfærapöntun gerð árið 2024 ætluð Úkraínu barst al...
USS Abraham Lincoln: US sailors unwind in Thailand by shopping and bar-hopping
📅 03.09.2026 👁️ 1
USS Abraham Lincoln: US sailors unwind in Thailand by shopping and bar-hopping
With military haircuts and moustaches, the US sailors stood out against the flip-flops of the usual Pattaya crowd, writes the BBC's Jonathan Head.
Channel smuggling gangs resort to 'mega-dinghies' as crackdown limits small boat supply
📅 03.09.2026 👁️ 1
Channel smuggling gangs resort to 'mega-dinghies' as crackdown limits small boat supply
Once-rival criminal groups are being forced to work together because of a shortage of small boats, a BBC investigation has found. 
Mikið reykjarkóf á tveimur stöðum með stuttu millibili
📅 03.09.2026 👁️ 1
Mikið reykjarkóf á tveimur stöðum með stuttu millibili
Fjórar stöðvar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðar til um klukkan hálf eitt í nótt vegna mikils reyks sem barst frá þaki Rimaskóla í Grafar...
Alríkisdómari kemur í veg fyrir beitingu tilskipunar sem takmarkar ríkisborgararétt
📅 03.09.2026 👁️ 1
Alríkisdómari kemur í veg fyrir beitingu tilskipunar sem takmarkar ríkisborgararétt
Alríkisdómari í Maryland setti í gær bráðabirgðalögbann á að Trump-stjórnin geti framfylgt nýrri tilskipun sem takmarkar hverjir öðlist sjálfkrafa ban...
Stjórnvöld birta ekki lista yfir gesti við jarðarför Haraldar V í öryggisskyni
📅 03.09.2026 👁️ 1
Stjórnvöld birta ekki lista yfir gesti við jarðarför Haraldar V í öryggisskyni
Yfirvöld í Noregi hafa í öryggisskyni ákveðið að birta ekki lista yfir þá erlendu ráðamenn sem viðstaddir verða útför Haraldar V konungs á miðvikudagi...
Varnarmálaráðherra hvetur brottrekna hinsegin hermenn til að sækja bætur
📅 03.09.2026 👁️ 2
Varnarmálaráðherra hvetur brottrekna hinsegin hermenn til að sækja bætur
Varnarmálaráðherrann Wes Streeting, sem sjálfur er opinberlega samkynhneigður, hvatti öll þau úr röðum hinsegin fólks sem þola máttu brottrekstur úr h...
Úkraínumenn vilja bann við almennri flugumferð um rússneska lofthelgi
📅 03.09.2026 👁️ 3
Úkraínumenn vilja bann við almennri flugumferð um rússneska lofthelgi
Úkraínsk stjórnvöld hafa farið þess á leit við Alþjóðaflugmálastofnunina að hún banni almenna flugumferð aðildarríkja hennar um rússneska lofthelgi.Þe...
Chris Mason: Reform face headwinds as they gather for conference
📅 03.09.2026 👁️ 1
Chris Mason: Reform face headwinds as they gather for conference
The party's continued prominence has brought what prominence always brings: scrutiny, says BBC political editor Chris Mason.
Einn drepinn og sex særðir í skotárás í Minneapolis
📅 03.09.2026 👁️ 2
Einn drepinn og sex særðir í skotárás í Minneapolis
Einn var drepinn og sex til viðbótar særðust í skotárás í miðborg Minneapolis í Bandaríkjunum síðdegis í gær að staðartíma.Staðarmiðlar segja heimilda...
Tveir drepnir og sex særðir í skotárás í Minneapolis
📅 03.09.2026 👁️ 1
Tveir drepnir og sex særðir í skotárás í Minneapolis
Tveir liggja í valnum og minnst sex til viðbótar særðust í skotárás í miðborg Minneapolis í Bandaríkjunum síðdegis í gær að staðartíma.Staðarmiðlar se...
The overlooked factor driving the childhood obesity crisis
📅 03.09.2026 👁️ 2
The overlooked factor driving the childhood obesity crisis
At a specialist childhood obesity clinic, almost all of the children are not in school. Why?
Yfirvöld hafa kyrrsett rússneskt skip við Svalbarða
📅 03.09.2026 👁️ 2
Yfirvöld hafa kyrrsett rússneskt skip við Svalbarða
Rússneskt skip, Professor Molchanov, sem grunur leikur á að hafi verið notað við áróðursstarfsemi og skipulagningu fjölþáttaógna var í gær kyrrsett vi...
Yfirvöld hafa kyrrsett rússneskt skip við Svalbarða — Rússar saka Norðmenn um sjóræningjastarfsemi

Vonast til að geta haldið á­rásum í lág­marki fram yfir kosningar - Vísir
📅 02.09.2026 👁️ 2
Vonast til að geta haldið á­rásum í lág­marki fram yfir kosningar - Vísir
Átök milli Bandaríkjanna og Írans stigmögnuðust enn frekar aðfaranótt miðvikudags þegar stjórnvöld í Teheran gerðu árásir á bandarískar herstöðvar víð...
Grunnskólanemum í New York-borg bannað að nota gervigreind
📅 02.09.2026 👁️ 2
Grunnskólanemum í New York-borg bannað að nota gervigreind
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, tilkynnti í dag að nemendum í grunnskólum borgarinnar væri bannað að nota gervigreind. Bannið nær til nemenda u...
What it's like to ride in Uber's new self-driving taxis in London
📅 02.09.2026 👁️ 2
What it's like to ride in Uber's new self-driving taxis in London
The ride-hailing app has launched 15 self-driving taxis, but they will have safety drivers inside.
Rocky Horror star Tim Curry's cause of death revealed
📅 02.09.2026 👁️ 2
Rocky Horror star Tim Curry's cause of death revealed
The British actor had significant conditions, cited on his death certificate in Los Angeles County.
Rocky Horror star Tim Curry's cause of death revealed as coronary artery disease
📅 02.09.2026 👁️ 1
Rocky Horror star Tim Curry's cause of death revealed as coronary artery disease
The British actor had significant conditions, cited on his death certificate in Los Angeles County.
B&Q and Five Guys among firms which paid staff below minimum wage
📅 02.09.2026 👁️ 2
B&Q and Five Guys among firms which paid staff below minimum wage
More than 600 companies underpaid staff, with £4m returned to workers, according to the government.
Hiti festi brú í uppreistri stöðu í Chicago
📅 02.09.2026 👁️ 2
Hiti festi brú í uppreistri stöðu í Chicago
Mikil röskun varð á umferð í Chicago í dag þegar brú á DuSable Lake Shore Drive yfir Chicago River festist í uppreistri stöðu.Brúnni var lyft um klukk...
Enginn að­dáandi Harry og Meghan - Vísir
📅 02.09.2026 👁️ 3
Enginn að­dáandi Harry og Meghan - Vísir
„Ég var enginn aðdáandi,“ bætti forsetinn við. Greint var frá því í vikunni að fjölskyldan hefði flutt ásamt börnum sínum aftur til Bretlands, sex áru...
Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn að­dáandi“ - Vísir

Ekki 270 fer­kíló­metrar heldur 26 - Vísir
📅 02.09.2026 👁️ 3
Ekki 270 fer­kíló­metrar heldur 26 - Vísir
Þá viðurkenndi Pútín í morgun að árásir Úkraínumanna í Rússlandi hefðu valdið skaða og sagði úkraínska sjálfsprengidróna sérstaklega mikið vandamál. H...
Trump fagnar heimkomu Harrys og Meghan: „Ég var ekki aðdáandi“
📅 02.09.2026 👁️ 3
Trump fagnar heimkomu Harrys og Meghan: „Ég var ekki aðdáandi“
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ánægður með að Harry Bretaprins og Meghan Markle hafi yfirgefið Bandaríkin og flutt til Bretlands. Hann segir ei...
Trump fagnar heimför Harrys og Meghan: „Ég var ekki aðdáandi“

„NEI Íslendinga við ESB tryggir þjóðarstjórn yfir fiskveiðum og orku,“ skrifar norskur fréttamiðill
📅 02.09.2026 👁️ 1
„NEI Íslendinga við ESB tryggir þjóðarstjórn yfir fiskveiðum og orku,“ skrifar norskur fréttamiðill
„NEI Íslendinga við ESB tryggir þjóðarstjórn yfir fiskveiðum og orku,“ skrifar norskur fréttamiðill Fréttin2. september 2026InnlendarLeave a Comment „...
US Open 2026 results: Katie Boulter wins just one game in 58-minute US Open defeat by Karolina Muchova
📅 02.09.2026 👁️ 2
US Open 2026 results: Katie Boulter wins just one game in 58-minute US Open defeat by Karolina Muchova
British number one Katie Boulter is dumped out in the second round of the US Open as she wins just one game in a 58-minute demolition by Karolina Much...