Líkir Sönnu við Zohran Mamdani

Líkir Sönnu við Zohran Mamdani

Líkir Sönnu við Zohran Mamdani

Sanna Magdalena
Sanna Magdalena MörtudóttirEr borgarfulltrúi og oddviti
Mynd: Víkingur

Alfreð Sturla Böðvarsson, Reykjavíkurbúi og sósíalisti, segir að Sanna Magdalena Mörtudóttir hafi alla burði til að verða Zohran Mamdani Reykjavíkur og leiða borgina á réttlátari og manneskjulegri braut. Þetta kemur fram í pistli á Vísi þar sem hann fjallar um stjórnmál í New York City og dregur samanburð við stöðuna í Reykjavík.

Í pistlinum hrósar Alfreð sérstaklega Mamdani fyrir stefnu sína í borgarmálum og segir hann hafa hafið umfangsmiklar félagslegar umbætur í New York. Þar nefnir hann meðal annars áform um ókeypis leikskóla fyrir alla borgarbúa, opnun óhagnaðardrifinna matvöruverslana á vegum borgarinnar og aukna skattlagningu á efnameiri fasteignaeigendur sem ekki búi sjálfir í borginni.

Að mati Alfreðs hafi kosningabarátta Mamdani snúist um að verja almenning gagnvart áhrifum auðvalds og tryggja að borgarstjórn þjóni öllum borgarbúum, en ekki eingöngu tekjuhæsta hópnum. Hann segir jafnframt að Mamdani standi frammi fyrir erfiðri fjárhagsstöðu þar sem borgarsjóður hafi verið rekinn með halla þegar hann tók við embætti.

Þá segir Alfreð að Sanna Magdalena búi yfir svipuðum áherslum og Mamdani og að hún líti ekki á borgina sem fyrirtæki heldur samfélag þar sem tryggja þurfi velferð, jafnrétti og sjálfbærni. Hann vísar til stefnumála sósíalista þar sem húsnæði sé skilgreint sem mannréttindi fremur en markaðsvara.

„Ég er ekki í nokkrum vafa um að hún sé hæfasta manneskjan til þess að gegna þessu mikilvæga starfi,“ segir Alfreð meðal annars og bætir við að hann telji að undir hennar stjórn geti Reykjavík eflst enn frekar sem höfuðborg Íslands.

#líkir #mamdani #sönnu #við #zohran


Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/likir-sonnu-vid-zohran-mamdani/

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260