Blanco, sem er giftur stórstjörnunni Selenu Gomez, sýndi frá þessu á samfélagsmiðlum og segir að markmiðið hafi verið einfalt; að sýna að hægt sé að léttast við það að borða nánast hvað sem er.
@itsbennyblanco can i lose weight if i only eat pizza?
♬ original sound - benny blanco
Ætlunarverkið tókst og eftir fimm daga pizzuát var Benny búinn að missa rúmlega tvö kíló.
„Ég missti rúmlega tvö kíló á fimm dögum við það að borða bara pizzu. Ekkert skiptir máli. Þú getur gert allt sem þig langar. Til fjandans með það að vera misheppnaður. Til fjandans með allt, sagði Blanco á TikTok eftir tilraunastarfsemina en virtist þó spenntur að geta loksins borðað eitthvað fjölbreyttara.