Mynd af Sindra Frey var birt í Facebook-hópnum Pattaya News. Hann er 184 sentimetrar á hæð með blá augu og stutt ljóst hár. Auk þess er hann með einkennandi húðflúr á hálsinum.
Hann sást síðast í tveimur verslunum 7-Eleven í borginni og á veitingastaðnum Bull Dog Pattaya.
„Við biðlum til allra í Pattya og nágrenni um hjálp. Ástvinur okkar er týndur og við þurfum alla mögulega hjálp við leitina,“ stendur í færslunni.
Notendur hópsins eru beðnir um að deila plakati með helstu upplýsingum um Sindra Frey.
„Hver deiling eykur líkurnar á að hann finnist. Takk fyrir stuðninginn.“