Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti lagði til í dag að samið verði um vopnahlé við Rússa þá daga sem erindrekar Bandaríkjanna, Steve Witkoff og Jared Kushner, heimsækja Kyiv og Moskvu.
Witkoff og Kushner eru væntanlegir til höfuðborga Úkraínu og Rússlands um helgina í þeim tilgangi að reyna að miðla málum svo hægt verði að binda endi á stríðið. Þetta verður þeirra fyrsta heimsókn til Kyiv. Þeir hafa nokkrum sinnum farið til Moskvu til viðræðna við stjórnvöld þar.
Í kvöldávarpi sínu sagði Zelenský Úkraínumenn ekki ætla að gera neinar loftárásir á Rússland á meðan erindrekarnir bandarísku dvelja í Moskvu. Þá biður hann rússnesk stjórnvöld um að gera hið sama á meðan þeir dvelja í Kyiv. „Við erum að gera þetta fyrir þá, ekki fyrir Rússland,“ sagði Zelenský. Hann vilji að viðræður við sendinefnd Bandaríkjanna verði eins uppbyggilegar og árangursríkar og hægt sé.
Bandaríkin hafa áður reynt að miðla málum án árangurs. Lítið hefur gerst í viðræðum síðan Bandaríkjaher hóf árásir á Íran í lok febrúar.
Þrátt fyrir að þreifingar séu í farvatninu hefur ekki verið neitt lát á árásum. Rússlandsher gerði í dag árás á höfuðstöðvar öryggisstofnunar Úkraínu í Kyiv. Borgarstjórinn, Vitali Klitchko, segir að tólf manns hið minnsta hafi særst.
Úkraínuforseti sagði ljóst að árásardrónum hefði verið beint að byggingunni.
Utanríkisráðherra Úkraínu, Andri Sibiya, fordæmdi árásina harðlega og sagði hana mikla stigmögnun sem kalli á einörð viðbrögð. Rússlandsher hafi gert árásina þrátt fyrir að yfir standi tilraunir til að hefja viðræður á ný. Þar með sé verið að hafna diplómatískum leiðum.