Leggja til nýja skilgreiningu „umhverfi“
Umhverfismál eiga oft undir högg að sækja. Tveir Frakkar, annar heimspekingur og hinn lögfræðingur, telja að tungumálið sé hluti af vandanum og halda því fram að verndun lífríkisins eigi að ræða á allt öðrum lagalegum forsendum. Þeir leggja til nýja skilgreiningu: „Búsetuhæfi.“
Umhverfismál eiga oft undir högg að sækja. Náttúran er oft sett til hliðar í stjórnmálum, gleymist í fjárlagagerð og tapar í réttarsölum. Hún er oft talin vera sérhagsmunamál sem víkur fyrir brýnni málum.
Tveir Frakkar, annar heimspekingur og hinn lögfræðingur, telja að tungumálið sé hluti af vandanum og halda því fram að verndun lífríkisins eigi að ræða á allt öðrum lagalegum forsendum.
Í nýrri bók sinni færa Baptiste Morizot og Laurent Neyret rök fyrir því að „búsetuhæfi“, þau skilyrði sem styðja við líf manna á jörðinni, eigi að meðhöndla sem grundvallarréttindi á borð við reisn og frelsi.
„Búsetuhæfi er forsenda allra réttinda okkar og frelsis,“ sagði Morizot, rannsakandi við Aix-Marseille-háskóla, í samtali við AFP.
Jafnvel í Frakklandi, þar sem umhverfið hefur stjórnarskrárstöðu, sagði Morizot að verndun náttúrunnar sem grundvallarréttinda væri oft sett neðar en önnur grunngildi, jafnvel þótt fólk geri sér ekki grein fyrir því.
„Enginn hefur sagt að …