Næststærsta herskip franska flotans lagðist að bryggju á Akureyri í dag. Skipið ber nafnið Le Monge og er flokkað sem mælingar- og prófunarskip. Í því eru um 115 hermenn og 80 aðrir sem sjá um tæknibúnað þess.
Að sögn hafnarstjóra Akureyrarhafnar, Péturs Ólafssonar, er skipið í hefðbundinni heimsókn og stoppar fram yfir helgi. Markmið heimsóknarinnar er að hvíla áhöfn og taka vistir.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, sagði í samtali við fréttastofu að heimsóknir erlendra herskipa frá bandalagsríkjum Íslands væru algengar, sérstaklega yfir sumartímann. Þau væru hér með leyfi íslenskra stjórnvalda.
Skipið er 215 metrar að lengd og 25 metrar að breidd og því engin smásmíði.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Le Monge kemur til Akureyrar en skipið kom síðast 2021. Þá stoppaði það einnig í Reykjavík 2012.
Í tilkynningu frá franska sendiráðinu segir að verkefni skipsins telji meðal annars þátttöku í prófunum við geimflug og þátttöku í geimeftirliti.
„Um þessar mundir tekur skipið t.d. þátt í verkefni sem gengur út á að fylgjast með fallandi hlutum úr geimnum, sem gætu hugsanlega valdið fólki skaða. Stærsti radarinn á þilfari skipsins heitir Normandie, vegur 62 tonn og er 14 metrar að þvermáli.“