Landsliðskona Íslands ólétt

Knattspyrnukonan Berglind Rós Ágústsdóttir og sambýlismaður hennar, Björn Metúsalem Aðalsteinsson, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Berglind greindi frá gleðitíðindunum á Instagram þar sem hún sagði að barnið væri væntanlegt í haust.
Af þessum sökum verður Berglind ekki með íslenska kvennalandsliðinu á næstunni og heldur ekki áfram keppni með Val á yfirstandandi tímabili.
Hún er uppalin hjá Val en hefur einnig leikið með Aftureldingu og Fylki, auk þess sem hún hefur spilað atvinnumennsku í Svíþjóð og á Spáni. Berglind sneri aftur til Vals og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2023 og bikarmeistari árið 2024. Hún hefur leikið 22 leiki með íslenska landsliðinu.
Björn lék sjálfur með Fylki og Hamri á sínum yngri árum sem markmaður. Hann varð Íslandsmeistari í 2. flokki með Fylki.