Öryggi sjúklinga og gæði þjónustunnar verða að vera í fyrirrúmi, segir landlæknir um stöðuna hjá SÁÁ. Hún segir að ef rekstrarformið trufli það, þá þurfi að endurskoða það.
Forstjóri Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, og fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur, sem er sálfræðingur, sögðu upp störfum í ágúst. Stuttu síðar sagði Valgerður Rúnarsdóttir framkvæmdastjóri lækninga á Vogi starfi sínu lausu vegna þess sem hún segir vera afskipti stjórnar félagsins af faglegu starfi.
Sjúkratryggingar og SÁÁ gerðu nýjan heildarsamning í desember til fjögurra ára og fær SÁÁ tvo milljarða króna á ári frá ríkinu samkvæmt samningnum. Embætti landlæknis hefur faglegt eftirlit.
„Við fórum þarna til þeirra um leið og við fengum fregnir af þessari stöðu og byrjuðum að skoða raunverulegar aðstæður,“ segir María Heimisdóttir landlæknir.
„Við höfum hitt bæði settan forstjóra og formann stjórnar og þessa þrjá klínísku framkvæmdastjóra sem þarna hafa verið við störf. Þannig að við erum að fylgjast mjög vel með þessu en auðvitað er þetta áhyggjuefni. Þetta er mjög mikilvæg en jafnframt mjög sérhæfð og flókin þjónusta.“
Er eitthvað þarna sem þeir sem að þurfa á þjónustunni að halda eða aðstandendur þeirra þurfa að óttast?
„Við skulum vona ekki í lengstu lög. En það er auðvitað mjög alvarlegt þegar verða skyndileg skipti á stjórnendum.“
Framkvæmdastjóri lækninga mun bera ábyrgð á læknisfræðilegri þjónustu þar til hún hættir. Þetta er ekki í fyrsta sem deilur koma upp innan SÁÁ milli stjórnenda og heilbrigðisstarfsfólks. En er forsvaranlegt að félagasamstök sinni svo viðkvæmri starfsemi eins og þjónusta við fólk með fíknsjúkdóma er?
„Við hér hjá Embætti landlæknis fókuserum á öryggi sjúklinga á gæði þjónustunnar ekki á rekstrarformið . Það eru þá frekar Sjúkratryggingar, vænti ég, sem að horfa á það. En það verður alltaf að tryggja að öryggi sjúklinga og gæði þjóustu séu í fyrirrúmi. Ef að eitthvert rekstrarform truflar það með einhverjum hætti þá þarf auðvitað bara að enduskoða það,“ segir María.