Lágafellskirkja boðar til minningarstundar

Mynd: Shutterstock
Boðað hefur verið til minningarstundar í Lágafellskirkju á morgun, miðvikudag, til minningar um Arndísi Höllu Guðlaugsdóttur, sem lést í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi í fyrrinótt. Hún var sextán ára gömul.
Minningarstundin hefst klukkan 17.30, en frá henni er greint á Facebook-síðu Lágafellskirkju.
Alls létust þrjú ungmenni í slysinu á Krýsuvíkurvegi. Tildrög þess eru nú til rannsóknar.
Fjöldi fólks hefur komið að slysstaðnum á Krýsuvíkurvegi. Þar hefur fólk minnst ungmennanna, vottað þeim virðingu sína og lagt niður blóm og aðra minningarhluti.