Læknar eru 89 prósent þeirra 250 starfsmanna, embættismanna og kjörinna fulltrúa sem fá hæstar launagreiðslur úr ríkissjóði. Þetta sýnir samantekt Fjársýslunnar sem hún vann að beiðni efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Hæstu mánaðarlaun starfsmanna ríkisins voru á sjöundu milljón króna að meðaltali á tímabilinu frá apríl í fyrra til mars í ár. Miðað er við heildarlaun og því geta aukastörf hjá ríkinu haft áhrif, svo sem þegar starfsmenn á einum stað vinna líka við kennslu.
Efnahags- og viðskiptanefnd óskaði upplýsinga um heildarlaunagreiðslur þeirra 250 sem fá hæstar launagreiðslur frá Fjársýslunni. Sú beiðni var hluti af vinnu nefndarinnar við frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytt viðmið á uppfærslu launa kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna.
Samantektin leiðir í ljós að læknar og stjórnendur á heilbrigðisstofnunum eru langfjölmennasti hópurinn á lista yfir launahæsta fólkið hjá ríkinu. Yfirlæknar eru sérstaklega áberandi efstir á listanum en launahæstur var þó framkvæmdastjóri hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Hluti af skýringunni á háum launum yfirlækna kann að vera að þeir taka að sér aukavaktir annars staðar á frívöktum.
Þrír launahæstu fá á bilinu 6,1 til 6,6 milljónir króna á mánuði að meðaltali.
Flugstjórar og flugvirkjar Landhelgisgæslunnar eru næstfjölmennasti hópurinn á lista þeirra launahæstu. Sjö launahæstu eru læknar en fyrsti flugstjóri Landhelgisgæslunnar er í áttunda sæti listans, með 4,6 milljónir, og annar í því fimmtánda.
Alls eru sautján flugstjórar og flugvirkjar Landhelgisgæslunnar á listanum yfir 250 launahæstu.
Aðeins tveir kjörnir fulltrúar komast á lista yfir 250 launahæstu. Halla Tómasdóttir forseti er í 20. sæti. Hún er með 4,2 milljónir á mánuði í laun. Kristrún Frostadóttir er hinn kjörni fulltrúinn á listanum. Hún er í 179. sæti listans með 2,9 milljónir.
Átta dómara er að finna á listanum. Launahæstur er dómstjóri við einn af héraðsdómstólum landsins en ekki er tilgreint við hvaða dómstól. Hann er með tæpar 3,0 milljónir í laun á mánuði sem skila honum í 149. sæti. Kollegar hans við tvo aðra héraðsdómstóla eru í 168. og 170. sæti.
Forseti Hæstaréttar er í 178. sæti, annar hæstaréttardómari er í 226. sæti og þrír dómarar við æðsta dómstól landsins skipa þrjú neðstu sæti listans.
Umboðsmaður Alþingis kemst á listann og er í 208. sæti.