Kristrún, Heimir og valdþurrð Þorgerðar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Heimir Már framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins hvatti til notkunar kjarnorkuvopna gegn Rússlandi í opinberri færslu á samfélagsmiðli. Dómgreindarleysi trúnaðarmanns eins stjórnarflokksins auglýsir gengisfall Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra. Tapið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst kippti fótunum undan myndugleika ráðherradóms Þorgerðar Katrínar.
Áður en Heimir Már lét til sín taka sem talsmaður í utanríkispólitík hafði Kristrún forsætisráðherra sagt með gjörðum sínum að sitjandi utanríkisráðherra væri hornkerling.
Nýverið efndi Kristrún til leiðtogafundar næstu nágranna okkar í austri og vestri, Grænlendinga og Færeyinga. Á dagskrá voru utanríkis- og öryggismál, fjárfestingar, staðan á norðurslóðum, efnahagsmál, tollamál og viðskipti. Þorgerður Katrín kom hvergi nærri, hvorki í undirbúningi né eftirmálum. Ráðherra utanríkismála er óþarfur segja skilaboðin úr forsætisráðuneytinu.
Í viðtengdri frétt segir frá máttlausum viðbrögðum Þorgerðar Katrínar við stöðutöku Heimis Más í utanríkismálum. Sitjandi utanríkisráðherra þorir ekki að fordæma fádæma ósvífni trúnaðarmanns ríkisstjórnarflokks. Þorgerður Katrín segir sýnu alvarlegra en afglöp Heimis Más að fyrrum forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi endurbirt sjónarmið utanríkisráðherra Rússlands á samfélagsmiðli. Ólafur Ragnar er ekki trúnaðarmaður ríkisstjórnar Kristrúnar – en Heimir Már er það.
Utanríkisráðherra er ekki í stöðu að taka í hnakkadrambið á stjórnarliðum er telja utanríkismál lausaleikskróga stjórnarráðsins. Þorgerður Katrín neitaði að axla ábyrgð á tapinu 29. ágúst. Hún getur ekki krafið aðra um ábyrgð. Afleiðingin er stjórnskipuleg lausung og pólitísk óreiða. Hver sem er getur átölulaust reynt hönd sína við utanríkispólitík í nafni ríkisstjórnarinnar. Hvort heldur settlegur bindindismaður í ráðherrastól eða sauðdrukkinn trúnaðarmaður á lyklaborði að næturþeli.
Þorgerður Katrín nær ekki vopnum sínum. Myndugleiki hennar hvarf 29. ágúst. Formaður Viðreisnar veðjaði pólitískri framtíð sinni að Íslendingar játuðust ESB-umsókn. Þjóðin tók fram fyrir hendur utanríkisráðherra, sagði nei. Það jafngildir vantrausti. Í beinu lýðræði afturkallaði þjóðin pólitískt umboð er Þorgerður Katrín hafði sem utanríkisráðherra. Eftir 29. águst 2026 blasir valdþurrð við formanni Viðreisnar og utanríkisráðherra.