Krist­rún hafi ekki lagt hjarta og sál í bar­áttuna - Vísir

Krist­rún hafi ekki lagt hjarta og sál í bar­áttuna - Vísir

Krist­rún hafi ekki lagt hjarta og sál í bar­áttuna - Vísir

Þeir Alastair Campbell og Rory Stewart gerðu niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar að umtalsefni í nýjasta þættinum. Þeir tóku eins og frægt var viðtal við Kristrúnu um þjóðaratkvæðagreiðsluna í þætti sem birtist í lok júlí. Viðtalið vakti mikla athygli hérlendis og þótti Kristrún standa sig vel. Hlaðvarpið er eitt það vinsælasta í heimi um þessar mundir en Alastair Campbell var á sínum tíma nánasti ráðgjafi Tony Blair og lykilmaður í sigri Verkamannaflokksins í kosningum 1997 á meðan Rory Stewart er fyrrverandi þingmaður Íhaldsflokksins.

Þátturinn hefst á ávarpi Alastair Campbell sem fer ekki leynt með vonbrigði sín vegna niðurstöðunnar. Hann segir niðurstöðuna áfall fyrir Evrópusambandið og sigur fyrir áróður og rangfærslur sem minni á Brexit-kosningarnar þegar Bretar samþykktu með naumindum að ganga úr Evrópusambandinu árið 2016.

„Fréttirnar munu gleðja Vladimir Pútín en fyrir honum er veik og sundruð Evrópa strategískt markmið. Að 400 þúsund manna þjóð skuli yfirhöfuð skipta kjarnorkuvopnaðan risa eins og Rússland máli undirstrikar hversu viðkvæmt geópólitískt landslag er um þessar mundir. Þess vegna fór Andy Burnham, þrátt fyrir að vilja vera forsætisráðherra sem einbeitir sér að innanlandsmálum, í ferð til Kænugarðs nýlega og lofaði Úkraínumönnum að aðstoða þá með langdrægum eldflaugum, sem varð til þess að Moskva sagði Bretland nú vera stærri óvin en nokkru sinni fyrr. Þetta er líka ástæðan fyrir því að Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, mun sækja viðburð um stöðu sambandsins í ESB í þessum mánuði og byggja upp nánari tengsl við Evrópu eftir því sem fjandskapurinn frá Bandaríkjum Trumps dýpkar. En ef Ísland vill ekki einu sinni samþykkja að ræða um viðræður, hvaða möguleika eiga þá núverandi umsóknarríki, að ógleymdu Bretlandi, Úkraínu eða Kanada, á að ganga í ESB sem er nógu sterkt til að veita ágengu Kína og duttlungafullum, óáreiðanlegum Bandaríkjunum samkeppni?“

Hafi skort forystu

Í þættinum svara þeir félagar spurningum og fá meðal annars spurningar um það hvort Já-sinnar á Íslandi hafi gert sömu mistök og Já-sinnar í Bretlandi á sínum tíma. Rory segir meðal annars að niðurstaðan sé vonbrigði en þó ekki heimsendir; ljóst sé að vera Íslendinga í EES og náið samstarf við Evrópu hafi meðal annars gert það að verkum að þeir hafi kosið nei.

„Og kannski til að vera svolítið ósvífinn: Ég velti fyrir mér, þegar ég hlusta aftur á viðtalið sem við tókum við forsætisráðherra Íslands þegar þú varst á Íslandi, hvort hluti vandans sé ekki í raun forystan. Ég meina, þetta var tiltölulega naumt, þetta var ekki langt frá 52-48 niðurstöðunni og mér fannst ekki að vinur þinn, forsætisráðherra Íslands, hefði sett hjarta sitt og sál í að koma þessu í gegn.“

Alastair segir þá að hann telji ekki að Kristrún myndi fallast á það. Sjálf hafi hún útlistað hugmyndir sínar um baráttuna í viðtalinu; hluti af hugsun hennar hafi verið sú að Íslendingar myndu ekki láta segja sér fyrri verkum.

„Hún þurfti að fara út á meðal fólks og hélt ótal marga frekar litla fundi á afskekktum stöðum úti á landi. En ég velti fyrir mér, og þar gætum við kannski mæst á miðri leið, ég velti fyrir mér hvort hluti af hugsun hennar hafi verið: Ef við töpum þessu, vil ég ekki að fólk haldi að þetta hafi verið mikið persónulegt áfall. Ég hafði smá áhyggjur, ég held ég hafi sagt það við þig á sínum tíma, ég hafði smá áhyggjur af því að það þýddi þá að það yrði ekki allt gert sem maður gæti til þess að vinna.“

Rory tók þá fram að Nei-hliðin hefði verið mjög skipulögð í kosningunum og vel fjármögnuð. Það hafi líka átt við Brexit-kosningabaráttuna. Já-sinnar hafi verið teknókratískir og rólegir í afstöðu sinni til þess hvernig kosningin myndi fara. Á meðan hafi afstaða Nei-sinna bæði á Íslandi og í Brexit einkennst af mun sterkari tilfinningum.

„Mikið af þessu snerist um fisk, var það ekki? 45 prósent af útflutningi Íslands er fiskur og þeir höfðu áhyggjur af því að missa stjórn á honum, fiskveiðikvótanum. Nei, ég held að þegar eitthvað er svona tæpt þá geri maður það væntanlega. Ég er viss um að þú ert sammála mér, þrátt fyrir mikla hrifningu þína á íslenska forsætisráðherranum, þá ert þú einhver sem trúir á pólitíska forystu og ég er viss um að þú myndir segja við mig að rétta herferðin með réttri forystu gæti náð þessum tveimur prósentum sem þarf til að koma málinu í höfn.“

Alistair segist taka undir með Rory þar en segir Kristrúnu hafa staðið í stafni baráttunnar. Hugmyndin að þjóðaratkvæðagreiðslunni hafi komið frá samstarfsflokki hennar, Viðreisn, en ekki henni sjálfri.

„Hún var þarna meira í hlutverki eins konar skýranda, að útskýra hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan væri haldin og hver málefnin væru, frekar en að útskýra af fullum ákafa „þess vegna ættum við að gera þetta“.

Alveg ljóst að íslenska Nei-ið hafi lært af Brexit

Þá víkur Alistair sér að spurningu hlustenda um það hvort íslenska Nei-hliðin hafi lært af Brexit. Segist hann ekki vera í vafa um það. Baráttan hafi verið keimlík baráttu Nei-sinna á Bretlandi þrátt fyrir að íslensk stjórnmál séu mjög ólík þeim bresku.

„Þeir sóttu til dæmis algjöra fyrirmynd úr 350 milljónum punda frá breska heilbrigðiskerfinu og töluðu um að fimmtíu milljarða íslenskra króna yrði að gefa til Evrópusambandsins. Hluti af herferðinni þeirra var fullyrðing um að íslensk börn yrðu kvödd í her Evrópusambandsins. Staðreyndin er sú að her Evrópusambandsins er ekki til og þar að auki er Ísland ekki með her. Samt ná svona rök í gegn. Ég velti því líka fyrir mér, þar sem Rússland hefur áhuga á þessum málum, hvort Rússland hafi staðið fyrir sínum venjulegu áróðursherferðum.“

Þá veltir Rory því upp hvað það sé sem Já-sinnar geti lært af Brexit og þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi. Það skipti máli fyrir framhaldið þegar fleiri lönd sækja um aðild. Alastair segist mögulega vera gamaldags en að hann telji að hrekja þurfi slíkar lygar.

„Og það þýðir ekki að maður segi bara að þetta sé ekki satt. Það þýðir að maður verður að tryggja að allir sem heyra að börnin manns verði kvödd í herinn, nei, heyri mann ekki bara segja það einu sinni að það sé ekki satt, heldur verður maður að gera það að hluta af stærri röksemdafærslu: Þetta er Brexit-lygavélin sem smitar stjórnmálin okkar, viljum við virkilega fara þá leið sem Vladimír Pútín hefur skapað, maður setur þetta í stóra samhengið,“ segir Alastair í þættinum.

„Og ég fann það þegar við tókum viðtalið að henni fannst það kannski óþægilegt að fara þá leið því stjórnmálamenningin á Íslandi er miklu almennilegri en hjá flestum okkar. Ég held að þegar við erum að ræða svona fámenna þjóð, um 400 þúsund manna þjóð, mjög fámenna þjóð, þetta var 52 komma eitthvað á móti 47 komma eitthvað, þá erum við að tala um að það voru hundruð, bara hundruð atkvæða sem hefðu getað sveiflað þessu í hvora áttina sem er.“

Íslenska leiðin geti verið leiðarvísir fyrir fleiri

Þá veltir Rory því fyrir sér í þættinum hvort horfa megi á afstöðu Íslendinga í þjóðaratkvæðagreiðslunni á jákvæðum nótum, hvort hana megi nýta til að endurhugsa hvernig litið er á stöðu meðalstórra ríkja.

„Ein helsta ástæðan fyrir því að Ísland gekk ekki í sambandið er sú sem þú gafst í skyn í upphafi, sem er að Ísland á nú þegar í gríðarlega nánu sambandi við Evrópu. Það er nú þegar hluti af innri markaðnum, það nýtur góðs af allri nálægð sinni við Evrópu og kannski er það sem við þurfum að læra af þessu að leiðin til að byggja upp nýtt bandalag meðalstórra ríkja er að hugsa um að koma löndum eins og Bretlandi í eitthvað sem líkist meira stöðu Íslands og að það sé kannski í raun líka fyrsta skrefið fyrir Úkraínu, fyrsta skrefið fyrir Serbíu,“ segir Rory.

Það sé fjórfrelsið, frjáls för fólks og aðgangur að innri markaðnum sem fólk hafi meiri áhuga á frekar en að vera hluti af pólitískri miðju bandalagsins. Það sé það sem megi læra af ákvörðun Íslendinga.

„Ekki: Jæja, gefumst bara upp því Ísland vildi ekki ganga í Evrópusambandið, hver annar ætlar að gera það? Í staðinn skaltu segja: Kannski sýnir Ísland í raun að það er mjög aðlaðandi staða að vera hluti af innri markaðnum, hluti af Schengen, hluti af fjórfrelsinu, án þess að vera fullgildur aðili og að það ætti að vera fyrsta skrefið fyrir Serbíu, Moldóvu, Úkraínu og hver veit, Bretland, Kanada og svo framvegis.“

#ekki #hafi #hjarta #kristrún #lagt


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262930563d/kristrun-hafi-ekki-lagt-hjarta-og-sal-i-barattuna

📰 Aðrar fréttir

Mótmælin í Frakklandi minna á stúdentauppreisnina 1968
📅 19.10.2026 👁️ 2
Mótmælin í Frakklandi minna á stúdentauppreisnina 1968
Mótmælin í Frakklandi, sem hófust meðal framhaldsskólanema um miðjan september, minna um margt á óeirðirnar árið 1968. Þetta segir Guðmundur Hálfdánar...
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum - Vísir
Hugmyndin kom fram í sérstakri umræðu um sjálfkeyrandi bíla á Alþingi í dag. Þar var rætt um hvernig undirbúa ætti íslenska vegakerfið og löggjöf fyri...
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Gunnar Ingi fann sálufélaga sinn í Bakkus og barðist gegn björgun: „Þetta var sannarlega sturlun. Ég var rekald í lífsins ólgusjó“
HELVÍTIS FANTUR ERTU! er ævisaga Gunnars Inga Gunnarssonar sem lungann úr starfsævi sinni var yfirlæknir á Heilsugæslunni Árbæ. Hann kom reyndar víðar...
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar
📅 19.10.2026 👁️ 2
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar
Trump vill að annar en Zelenskyj semji um frið í Úkraínu – ágreiningur leiðtoganna harðnar Fréttin19. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a...
Brugðust illa við svörum Ingu Sæland
📅 19.10.2026 👁️ 2
Brugðust illa við svörum Ingu Sæland
Stjórnarnandstaðan sakaði Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um dónaskap þegar hún var beðin um að útskýra nýtt einkunnakerfi í grunnskóla á þin...
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hvað veistu um… Nylon? - Vísir
Nylon starfaði einnig um tíma í Bretlandi, en sveitin hætti svo að koma fram undir merkjum Nylon árið 2008. Liðsmenn komu þó aftur saman á Menningarnó...
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
📅 19.10.2026 👁️ 2
Búast við aukinni sölu rafbíla á næstu dögum
Styrkir til kaupa á rafknúnum fólksbílum lækka um 100 þúsund krónur um næstu mánaðamót, úr 500 í 400 þúsund, samkvæmt reglugerð sem umhverfisráðherra ...
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
📅 19.10.2026 👁️ 2
Komu til Íslands til að fagna gullbrúðkaupi – Ferðin breyttist í martröð
Tom Profitt og eiginkona hans komu hingað til lands í lok september til að fagna 50 ára brúðkaupsafmæli sínu. Dvöldu þau á landinu í viku, gengu víða ...
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Lára hefur greinst þrisvar með krabbamein: „Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót“
Lára Árnadóttir hefur þrisvar sinnum greinst með krabbamein. Hún er þakklát fyrir lífið og fyrir að hafa þekkt sinn líkama og hlustað á einkennin.
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
📅 19.10.2026 👁️ 2
Skrásetja öll hjartastuðtæki landsins
Um 3000 hjartastuðtæki eru víðs vegar um landið. Heilbrigðisráðuneytið hefur hrundið af stað verkefni að skrásetja öll tækin. Þorbjörg Katrín Davíðsdó...
Sahara Ray látin - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Sahara Ray látin - Vísir
TMZ greinir frá þessu. Aðstandendur Ray segja hana hafa fallið frá í gær. Hún hafi verið í faðmi fjölskyldu. Dánarorsök liggur ekki fyrir. Ray varð fr...
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
📅 19.10.2026 👁️ 3
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
Rannveig Rist lét af störfum sem forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík í maí en hún hafði þá gegnt starfinu í um 30 ár. Á ársfundi Samtaka atvinnulí...
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski - Vísir
Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir var kynnir á viðburðinum og sagði gestum frá rúmlega 140 kílóa bláuggatúnfisknum sem var fluttur sérstaklega til ...
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
Hrefna Dagbjört Arnardóttir, eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð, þar sem bæði er stunduð ferðaþjónustustarfsemi og skógrækt, höfðaði málið á...
Eldur í potti á Norðurbakka
📅 19.10.2026 👁️ 3
Eldur í potti á Norðurbakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er í útkalli vegna elds á Norðurbakka í Hafnarfirði. Þar reyndist eldur hafa kviknað í potti. Vel gekk að slökkva eldi...
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en...
Richard Riehle látinn - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Richard Riehle látinn - Vísir
Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greinir frá andláti Riehle og segir hann hafa látist á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum. Riehle sló gjörsamle...
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
📅 19.10.2026 👁️ 3
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir Hæ...
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
Serhii Beskrestnov says there has not been enough time to warn people about incoming missile attacks. The White House said there had been no changes t...
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
📅 19.10.2026 👁️ 3
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða...
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
📅 19.10.2026 👁️ 3
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
Matthías Freyr Matthíasson, 46 ára, greindist með ristilkrabbamein í apríl síðastliðnum eftir að hafa glímt við mikla kviðverki um nokkurt skeið. Sköm...
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu.  Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum...
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
Íslenskur skiptinemi sem býr í París í Frakklandi fann lítið fyrir mótmælunum sem hafa verið í borginni, þar til um helgina. Mótmælin hafa stigmagnast...
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar up...
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
📅 19.10.2026 👁️ 3
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft uppi á öllum fimm sem eru grunaðir um stórfellda hópárás í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Árásin átti sér stað í byr...
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
📅 19.10.2026 👁️ 3
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
A 16-year-old boy has suffered a broken arm and multiple injuries after allegedly being attacked by a group of five young people in Vecindario, Gran C...
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
Þetta segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, í samtali við fréttastofu. Tilefnið er tilkynning lögreglu í síðustu viku þar se...
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
Gísli Freyr Valdórsson, umsjónarmaður Þjóðmála, telur að það sé skrítin stemning í þingflokki Viðreisnar og að það verði gerðar breytingar á forystu f...
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir Yfirvöld í Danmörku hefja rann­sókn eftir að frétta­ljós­mynd­arar lýsa árásum af hálfu lög­regl­unnar. Ljós­my...
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
📅 19.10.2026 👁️ 3
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
Um sex hundruð sendlar starfa hjá Wolt hér á landi.Hópur þeirra lagði niður störf um miðjan september þegar laun þeirra voru lækkuð um allt að 40 prós...
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að kaupin byggi á endurkauparétti sem samið var um við Reykjavíkurborg árið 2011.  Sk...
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
📅 19.10.2026 👁️ 3
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann um þrítugt til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir innflutning á fíkniefninu kratom. Dómari...
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
The Saudi government did not immediately respond to BBC requests for comment.
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
📅 19.10.2026 👁️ 3
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
Tvö herskip bandaríska sjóhersins eru í Jökulfjörðum: skipin Hos Red Rock og Hos Red Dawn.Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafa þau leyfi s...
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Snorri vísaði til fréttaflutnings síðustu vik...
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
📅 19.10.2026 👁️ 4
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
Lykilstarfsmenn fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi fara þaðan beint til starfa í ráðuneyti og stofnunum sem koma að lagasetningu og leyfisveitingum....
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn Kosn­inga­bar­áttan fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber er orðin jafn­ari en...
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
Þetta kemur fram í athugasemd jarðfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu þann 5. október og 28. júlí. Nokkrir ...
Mannskæð drónaárás nærri markaði
📅 19.10.2026 👁️ 4
Mannskæð drónaárás nærri markaði
Að minnsta kosti 80 voru drepnir í drónaárás í suðurhluta Súdan í gær. Árásin var við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, en þ...
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
European governing body Uefa tells Fifa it must release key documents related to its governance and decision-making by 2 November.
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum Fréttin19. október 2026Erlent, Innlent,...
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
Sigurjón virtist þar vera að vísa til þess að stjórnarandstaðan hefði gert sig bera af ofurviðkvæmni í hinu pólitíska argaþrasi þar sem menn hafa eina...
Skjálfti 5,2 að stærð í Bárðarbungu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Skjálfti 5,2 að stærð í Bárðarbungu
Skjálfti af stærðinni 5,2 varð í Bárðarbungu klukkan korter í þrjú. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt, flestir minni en 2 að stærð. Nokkrir skjálftar ...
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn Fréttin19. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsso...
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV?
📅 19.10.2026 👁️ 4
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV?
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV? Fréttin19. október 2026Aðsend grein, Gervigreind, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skri...
Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á English Pub
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á English Pub
Héraðssaksóknari hefur ákært erlendan mann á fertugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás fimmtudaginn 14. mars árið 2024, á veitingastaðnum En...
Ráðherra í stjórnarandstöðu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ráðherra í stjórnarandstöðu
Ráðherra í stjórnarandstöðu Fréttin19. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Þorgerður Katrín ut...
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stýrði umferð vegna bráðra sjúkraflutninga af Suðurlandi. Þetta staðfestir Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn....