Kona sem Lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir snemma í kvöld, miðvikudagskvöld, er fundin.
Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð og hefur óskað eftir að mynd af konunni verði tekin úr birtingu.
Ennfremur kemur fram í tilkynningu lögreglu að hún veiti ekki frekari upplýsingar í málið og kemur ekki fram hvort konan hafi fundist heil á húfi eða ekki.