Kjóllinn brann korter í brúð­kaup - Vísir

Kjóllinn brann korter í brúð­kaup - Vísir

Kjóllinn brann korter í brúð­kaup - Vísir

Sólborg er fædd árið 1996 og starfar sem ráðgjafi á mannauðssviði hjá Eimskip. Hún er gift Magnúsi Guðlaugi Magnússyni, klippara hjá Sýn og hjónin eru jafngömul. Þau hafa verið par í áraraðir og trúlofuðu sig í byrjun árs 2024. Sólborg ræddi við blaðamann um þennan ógleymanlega dag og brunaatvik sem átti sér stað nokkrum vikum fyrir brúðkaup.

Sólborg og Magnús eru búin að vera saman í fjölda ára og trúlofuðu sig í byrjun árs 2024. Guðný Lára

Draumur á Reyðarfirði

Þau giftu sig á Reyðarfirði 26. júlí 2025 og var dagurinn draumi líkastur að sögn þeirra hjóna.

„Athöfnin fór fram í Reyðarfjarðarkirkju og veislan síðan í hlöðunni í Seljateig, sem er í eigu fjölskyldu mannsins míns. Það var okkur ótrúlega dýrmætt að geta fagnað með öllu okkar fólki á þessum stað og við hefðum ekki viljað hafa þetta neins staðar annars staðar.“

Brúðkaupið stóð í raun yfir heila helgi.

„Þar sem það er ansi langt ferðalag fyrir flesta að fara austur voru allir komnir til Reyðarfjarðar á föstudeginum. Við byrjuðum helgina á pöbbkvissi á Kaffi Kósý, sem er bar og veitingastaður í bænum. Besti vinur okkar hafði útbúið spurningakeppnina og það kvöld var ótrúlega skemmtilegt. Það var svo góð leið til að hita upp saman fyrir stóra daginn.“

Fjölskyldan á bleiku skýi eftir brúðkaupið.Guðný Lára

Á laugardeginum byrjaði Magnús, maður Sólborgar, daginn á því að fara yfir í hús foreldra sinna, þar sem hann var með strákinn þeirra og stóran hóp af mönnum í kringum sig að gera sig klára. 

„Ég varð hins vegar eftir í Seljateig með öllum mínum bestu konum. Förðunarfræðingurinn Erna Hrönn kom eldsnemma og farðaði mig ásamt nokkrum öðrum og stuttu síðar kom ljósmyndarinn okkar, Guðný Lára. Hún tók myndir bæði hjá okkur stelpunum og fór síðan yfir til strákanna og myndaði undirbúninginn þar líka.

Mamma bestu vinkonu minnar græjaði dögurð fyrir okkur og andrúmsloftið var svo afslappað og yndislegt. Við vorum allar spenntar en samt bara svo rólegar og tilbúnar í daginn.“

Tilbúin að sleppa tökunum

Sólborg segist sérstaklega muna eftir tilfinningunni sem tók yfir hjá henni þennan morguninn.

„Ég var einhvern veginn bara búin að sleppa tökunum. Allur undirbúningurinn var búinn og nú myndi bara allt fara eins og það ætti að fara. Það var grenjandi rigning fyrir athöfnina en ég nennti einu sinni ekki að stressa mig á því. Auðvitað var spenna í maganum og ég vonaðist eftir því að allt myndi ganga vel, en það var samt ákveðin ró yfir mér.

Athöfnin var klukkan þrjú og mamma kom með mér í brúðarbílnum í kirkjuna. Ég get ekki ímyndað mér að hafa ekki haft hana með mér. Það var svo dýrmætt augnablik sem við fengum bara tvær saman.“

Sólborg og mamma hennar áttu ómetanlega stund fyrir brúðkaupið.Guðný Lára

Fann til í kinnum af gleði

Í athöfninni voru hjónin með píanóleikara og þverflautuleikara.

„Þau spiluðu Can You Feel the Love Tonight með Elton John þegar systir mannsins míns og dóttir hennar gengu inn sem blómastelpurnar okkar og mamma mín og sonur okkar gengu inn með hringana. Síðan spiluðu þau Can’t Help Falling in Love með Elvis Presley þegar ég og pabbi minn gengum að altarinu.

Ég brosti svo mikið alla athöfnina að ég var farin að finna til í kinnunum. Við fundum svo mikið fyrir allri ástinni í kirkjunni og það var ótrúlega fallegt að sjá pabba minn, tengdapabba og manninn minn alla klökkna.“

Eftir athöfnina fóru hjónin í myndatöku á meðan gestirnir fóru upp í Seljateig í fordrykk og forrétti.

„Veðurguðirnir voru svo sannarlega með okkur því beint eftir athöfn stytti upp og hætti að rigna. Við fengum milt og gott veður allan daginn og kvöldið og það stytti alltaf upp á hárréttum tímum. 

Við stelpurnar vorum búnar að sjá á netinu fólk vera grafa pulsur í garðinum kvöldið fyrir stóra viðburði sem átti að kalla á gott veður þannig við gerðum það og ég vil meina að veðrið hafi verið pulsunni að þakka. 

Við vorum alltaf ákveðin í því að myndatakan yrði úti í náttúrunni, enda vorum við á þessum fallega stað úti á landi, og myndirnar komu ótrúlega fallega út.“

Sólborg og vinkonur hennar á Reyðarfirði í sveitasælu yfir brúðkaupshelgina. Þær grófu pulsu fyrir gott veður. Aðsend

Skemmtilegasta upplifun í heimi

Eftir myndatökuna fóru nýgiftu hjónin svo yfir í veisluna. 

„Þar var ansi þétt dagskrá af ræðum, leikjum og skemmtiatriðum sem fólkið okkar hafði verið að plana fyrir okkur. Sem betur fer vorum við með algjörlega frábæran veislustjóra, hann Almar Blæ Sigurjónsson leikara, sem er æskuvinur mannsins míns. Hann sá um að allt gengi fullkomlega upp þetta kvöld.

Það er eiginlega ekki hægt að lýsa tilfinningunni að sitja bara og hlusta á ræður, lög og öll skemmtiatriðin sem fólkið okkar hafði lagt svona mikla vinnu í að undirbúa fyrir okkur. Það var algjörlega ómetanlegt og raunverulega eitt það skemmtilegasta sem ég hef upplifað.“

Brúðkaupið var einhver skemmtilegasti dagur lífs þeirra hjóna. Guðný Lára

Ást og umhyggja bak við hverja máltíð

Maturinn var alveg upp á tíu og allir gestir sáttir.

„Brúðarkakan var bökuð af tengdapabba mínum og systur mannsins míns og það var alvöru metnaður og ást á bak við hana. Besta vinkona mín og frænka mín voru líka búnar að baka og græja fullt af litlum sætum bitum með kaffinu.

Þegar ræðuhöldum og skemmtiatriðum lauk, sem var orðið ansi seint, var komið að okkur að dansa fyrsta dansinn. Við höfðum æft hann saman með hjálp YouTube og dönsuðum við Með þér með Bubba Morthens. Eftir það tók Þorgeir Brimir trúbador við og hélt uppi alvöru sveitaballsstemningu. Allir dönsuðu úr sér allt vit langt fram eftir nóttu.“

Athöfnin var einlæg og ógleymanleg. Allir dönsuðu fram á nótt í veislunni og gæddu sér á dýrindis veitingum.Guðný Lára

Um miðnætti setti mamma Sólborgar upp samlokugrillstöð og þar var mikil ást og umhyggja að baki.

„Hún hafði smurt ekkert eðlilegt magn af samlokum sem hægt var að henda í grillið fyrir þá sem þurftu smá orku til að halda áfram að dansa. Það sló rækilega í gegn og ég vil meina að þetta hafi verið besta grillsamloka sem ég hef nokkurn tímann borðað.

Allt kvöldið var bara fullkomið og svo ótrúlega gaman að ég get varla lýst því. Það var líka svo mikill sjarmi yfir því að hafa brúðkaupið úti á landi. Fólkið okkar var búið að leggja alla þessa leið fyrir okkur og allir fóru bara all in alla helgina. 

Hjálpin sem við fengum frá öllum dagana fyrir brúðkaupið var líka ómetanleg. Þetta hefði aldrei getað orðið að veruleika án þeirra. Maður fann bara hlýjuna og ástina frá öllum helgina alla. Þetta var klárlega skemmtilegasti dagur sem við höfum upplifað.“

Gleðin var við völd allan brúðkaupsdaginn.Guðný Lára

Ánægð að enginn var veikur eða dáinn

Sólborg hafði verið ótrúlega fljót að finna draumakjólinn sinn og virtist það skrifað í skýin fyrir hana.

„Ég var rétt byrjuð að skoða og pæla í kjólum tæpu ári fyrir brúðkaupið þegar ég sá að Loforð væri að fara vera með lagersölu á brúðarkjólum. Ég ákvað því að vera hagsýn, dró vinkonurnar með mér og fann þar óvænt kjólinn minn.

Sirka hálfu ári fyrir brúðkaupið fór ég svo með hann aftur í Loforð og lét stytta hann og laga hann alveg að mér. Ég var þvílíkt ánægð með hann og hélt að þar með væri kjólamálið einfaldlega búið.“

Svo varð ekki og úr varð heldur betur óvanaleg lífsreynsla.

„Þar sem kjóllinn var frá lagersölu var hann í raun sýningareintak en hann var í fullkomnu standi. Eftir að hann var kominn úr breytingum og alveg tilbúinn hugsaði ég að það væri ekkert vitlaust að setja hann í hreinsun.

Mánuði fyrir brúðkaupið fór því frænka mín með kjólinn fyrir mig í hreinsun hjá Efnalauginni Björgu. Daginn áður en við áttum að sækja hann gerðist svo það sem enginn bjóst við, það kviknaði í efnalauginni.“

Sólborg bjóst seint við því að brúðarkjóll hennar myndi brenna rétt fyrir brúðkaup.Aðsend

Þegar Sólborg var ný mætt í vinnuna fékk hún símtal frá mömmu sinni og bjóst við því versta.

„Hún var mjög dramatísk og sagði mér að hún þyrfti að segja mér mjög leiðinlegar fréttir. Ég heyrði bara á röddinni hennar að hún var ekkert að grínast. Síðan sagði hún mér að það hefði kviknað í efnalauginni þar sem brúðarkjóllinn minn hafði verið í hreinsun.

Ég var auðvitað fyrst og fremst bara fegin að það væri enginn veikur eða dáinn, miðað við hversu alvarleg mamma lét í sér heyra. Við vissum hins vegar ekkert á þessum tímapunkti hvort kjóllinn hefði sloppið eða hversu mikið tjónið væri hjá þeim og það var auðvitað engin leið að vita það strax.“

„Mögulega var brúðarkjóllinn minn að brenna“

Það fyrsta sem Sólborg gerði var að hringja í Loforð. 

„Það var ansi furðulegt símtal að hringja og segja: Ég er að fara að gifta mig eftir minna en mánuð og mögulega var brúðarkjóllinn minn að brenna.“

Sólborg er óendanlega þakklát stelpunum hjá Loforði, sem hún segir bókstaflega hafa bjargað sér frá fyrsta símtali.

„Þær vildu allt fyrir mig gera. Kjóllinn sem ég hafði keypt var auðvitað úr lagersölu og var ekki lengur til hjá þeim en þær voru fljótar að finna hann hjá framleiðandanum og fengu dagsetningu á því hvenær þyrfti að panta hann svo hann myndi nást til landsins áður en við færum austur. Þær buðu mér líka að troða mér inn hjá sér og koma að máta aðra kjóla ef ég vildi kannski bara fá allt annan kjól.“

Kjólamálin redduðust og gott betur. Guðný Lára

Ætlað að finna þennan kjól

Tveimur dögum eftir brunann fékk hún svo staðfest frá efnalauginni að því miður hefði brúðarkjóllinn verið einn af þeim flíkum sem eyðilögðust alveg í brunanum.

„Þá fór ég aftur með vinkonum mínum í Loforð að máta kjóla, bara til öryggis ef það skyldi vera einhver annar kjóll sem biði mín áður en við þyrftum að panta hinn hjá framleiðandanum.

Þær voru í alvörunni svo yndislegar hjá Loforð. Ég mátaði nokkra kjóla og svo kom hún með einn sem var mjög ólíkur kjólnum sem ég hafði upphaflega ætlað að gifta mig í. Um leið og ég mátaði hann fann ég bara að þetta væri kjóllinn.

Þetta hljómar ógeðslega dramatískt, en tilfinningin var í alvörunni bara: Ókei, mér var ætlað að finna þennan kjól.“

Kjóllinn var meira að segja sýningareintak og í stærð Sólborgar, þannig að hann bókstaflega beið bara þarna eftir mér. Þær náðu líka að troða mér inn hjá saumakonunni sinni í breytingar svo allt myndi nást áður en við færum austur.“

Sólborg var enn ánægðari með nýja kjólinn.Guðný Lára

Tveimur dögum áður en hjónin héldu austur fór Sólborg svo og sótti kjólinn eftir breytingarnar.

„Hann var bara fullkominn og eftir það hugsaði ég varla aftur um þann sem brann. Og það segja það allir sem sjá þá báða að kjóllinn sem ég endaði á að vera í hafi verið miklu flottari en það þorir eflaust enginn að segja neitt annað,“ segir Sólborg og skellir upp úr.

Allt reddaðist og ástin alltumlykjandi

Hún viðurkennir að það hafi verið krefjandi að halda ró sinni fyrst þegar hún fékk fréttir af brunanum.

„Ég hugsaði bara: „Hverjar eru líkurnar á að þetta gerist?“ Ég viðurkenni alveg að ég vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta yfir þessu. En auðvitað er þetta bara flík og það reddast alltaf allt sem á að reddast Ég fann líka bara svo til með þeim hjá efnalauginni, sérstaklega þegar það varð ljóst hversu mikið tjónið hjá þeim var.

Í enda dags er þetta auðvitað bara kjóll. Ég er samt ótrúlega þakklát fyrir hvað allir voru tilbúnir að hjálpa okkur þegar þetta gerðist, sérstaklega fólkið hjá Loforð og Efnalauginni Björgu.

Þetta fór bara allt saman nákvæmlega eins og það átti að fara. Við fengum að eiga yndislegan dag með öllu besta fólkinu okkar og það er það sem stendur upp úr þegar maður lítur til baka.“

Ástin var alltumlykjandi.Guðný Lára

Það sem situr mest eftir hjá Sólborgu er í raun hversu mikla ást og hlýju þau fundu frá öllum í kringum þau.

„Hvort sem það var fólk sem lagði alla leið austur fyrir okkur, fjölskyldan okkar og vinir sem hjálpuðu til við undirbúninginn eða fólkið sem lagði vinnu í að gera brúðkaupsdaginn okkar að því sem hann varð.

Við hefðum aldrei getað gert þetta án þeirra og það er eitthvað sem við munum alltaf vera óendanlega þakklát fyrir.“

#brann #brúðkaup #kjóllinn #korter #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262923148d/kjollinn-brann-korter-i-brud-kaup

📰 Aðrar fréttir

Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
📅 08.10.2026 👁️ 2
Geta Íslendingar eignað sér nýja nóbelsverðlaunahafann? - „Mér skilst að þingmenn Miðflokksins séu búin að leggja inn fyrirspurn“
Eins og kunnugt er var tilkynnt í morgun að ljóðskáldið Anne Carson hefði hlotið nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Hún er frá Kanada en hefur undanfarin ...
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
📅 08.10.2026 👁️ 2
Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr
Ónefndur veitingastaður á Íslandi gerðist sekur um mismunum á grundvelli þjóðernisuppruna síðsta sumar þegar pari frá Ísrael var neitað um þjónustu. Þ...
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
📅 08.10.2026 👁️ 2
Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti
Landsréttur staðfesti í dag 16 ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem banaði föður sínum á heimili fjölskyldunnar við Súlunes á Arnarnes...
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
📅 08.10.2026 👁️ 1
Sorgleg staðreynd um systurnar þrjár sem drukknuðu við strönd Brighton
Þrjár systur sem fundust látnar í sjónum við Brighton á Englandi í maí sviptu sig lífi, samkvæmt niðurstöðu réttarrannsóknar sem lauk í dag, 8. októbe...
Spjallið með Frosta Logasyni | Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Alaska og Flóni hætt saman - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu en þau eru þó enn góðir vinir. Samband þeirra varð opinbert í apríl á þessu ári og höfðu þau verið vinir í dágóða st...
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
📅 08.10.2026 👁️ 1
Staðfesta fyrsta dauðsfallið vegna ebólu í Kenía
Yfirvöld í Kenía hafa staðfest fyrsta dauðsfallið vegna ebólu-smits. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin staðfestir að tilfellið sé það fyrsta sem greinist af...
Loftslagstilraun hefst í Hval­firði á næstu dögum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Loftslagstilraun hefst í Hval­firði á næstu dögum - Vísir
Sérfræðingar á vegum bæði Hafrannsóknastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar veittu jákvæðar umsagnir um umsókn rannsóknarfélagsins Rastar um tilrau...
Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 á bak við luktar dyr. Dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo s...
Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Saga Sig og Villi nagl­bítur eignuðust dóttur - Vísir
„Dóttir okkar Sögu mætti yfirveguð og fullkomin þ. 27.09.26 kl. 12:34,“ skrifar Villi í færslu á samfélagsmiðlum og birtir nokkrar myndir af dótturinn...
Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 1
Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir - Vísir
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir. Í héraði var Stefán sömuleiðis...
Stofna samtök sveitarfélaga í landbúnaði
📅 08.10.2026 👁️ 2
Stofna samtök sveitarfélaga í landbúnaði
Mikil fundahöld eru á vegum sveitarfélaga þessa dagana í Reykjavík. Aðalfundur Jöfnunarsjóðs var í gær og í dag hefst árleg fjármálaráðstefna í Vör, f...
Guðmundur Felix fékk slæmar fréttir: „Þetta verður flóknara en það leit út fyrir í upphafi“
📅 08.10.2026 👁️ 2
Guðmundur Felix fékk slæmar fréttir: „Þetta verður flóknara en það leit út fyrir í upphafi“
Guðmundur Felix Grétarsson segir að það sé flóknara en það hafi litið út fyrir í upphafi að losna við krabbameinið úr nefinu. Fékk hann þær slæmu frét...
Barnastjarnan sér eftir brjóstaminnkuninni þegar hún var 15 ára
📅 08.10.2026 👁️ 2
Barnastjarnan sér eftir brjóstaminnkuninni þegar hún var 15 ára
Leikferill barnastjörnunnar Raven-Symoné hófst í The Cosby Show og hún varð síðar fræg hjá Disney Channel með eigin sjónvarpsþætti, That's So Raven, s...
„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út“
📅 08.10.2026 👁️ 2
„Þegar menn ná ekki saman þýðir það ekki að menn hafi engu spilað út“
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekki rétt að samtökin hafi ekki komið til móts við VR, LÍV og fagfélögin í kjaraviðræðum líkt og formaðu...
Two men arrested on suspicion of trespass at RAF base
📅 08.10.2026 👁️ 2
Two men arrested on suspicion of trespass at RAF base
Police say the suspects are Latvian nationals aged 36 and 32.
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“
📅 08.10.2026 👁️ 2
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“
Áhyggjur af ríkisskuldum Frakka: „Enginn frír hádegisverður“ Vext­ir af rík­is­lán­um Frakk­lands eru komn­ir á sama stig og síð­ast í al­þjóð­legu fj...
Áform Bandaríkjanna, geimkapphlaup og loftslagsmál á dagskrá Hringborðs norðurslóða
📅 08.10.2026 👁️ 2
Áform Bandaríkjanna, geimkapphlaup og loftslagsmál á dagskrá Hringborðs norðurslóða
Hringborð norðurslóða, þing Arctic circle hefst í Hörpu í dag. Þar verða um 200 málstofur og um 700 ræðumenn. Meðal annars verður fjallað um áform Ban...
„Það er stormur í dag“
📅 08.10.2026 👁️ 2
„Það er stormur í dag“
Formaður VR segir að stéttarfélagið og fagfélögin hafi teygt sig langt nú þegar í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Nú velti framhaldið á samtö...
Breska lögreglan viðurkennir að húsleitarheimildir voru ólögmætar
📅 08.10.2026 👁️ 2
Breska lögreglan viðurkennir að húsleitarheimildir voru ólögmætar
Lögreglan í Thames Valley í Bretlandi hefur viðurkennt að þær leitarheimildir, sem voru notaðar til að leita á heimilum Andrews Mountbatten-Windsors, ...
Máttu ekki leita hjá fyrr­verandi prinsi vegna Epstein-tengsla - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Máttu ekki leita hjá fyrr­verandi prinsi vegna Epstein-tengsla - Vísir
Húsleit var gerð hjá Andrew Mountbatten-Windsor, sem áður gekk undir titlinum Andrés prins, í tengslum við uppljóstranir um tengsl hans við Jeffrey Ep...
Sannleikurinn á bak við sögusagnir um afsökunarbeiðni Harry og Markle
📅 08.10.2026 👁️ 3
Sannleikurinn á bak við sögusagnir um afsökunarbeiðni Harry og Markle
Sussex-hertogahjónin Harry prins og Meghan Markle ætla ekki að biðja Vilhjálms, bróður Harry, og eiginkonu hans; Katrínu Middleton, afsökunar á viðtal...
Ekki rétt sem Halla segir - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ekki rétt sem Halla segir - Vísir
Bjarni Benediktsson ræddi við fjölmiðla áður en fundurinn hófst. Hann sagði það verða að koma í ljós hvað gerist á fundinum. Eins og fram hefur komið ...
Fyrrverandi landsliðskona greinir frá svimandi kostnaði við íþróttir barnanna – „Rétt tæp milljón í æfingagjöld“
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi landsliðskona greinir frá svimandi kostnaði við íþróttir barnanna – „Rétt tæp milljón í æfingagjöld“
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrrverandi landsliðskona í handbolta, greinir frá svimandi kostnaði við íþróttaiðkun barna hennar þriggja. Þarf hún að greiða...
Stærstu sveitarfélög landsins öll rekin með halla
📅 08.10.2026 👁️ 3
Stærstu sveitarfélög landsins öll rekin með halla
Öll sex fjölmennustu sveitarfélög landsins voru rekin með halla á fyrstu sex mánuðum ársins, að minnsta kosti þegar kemur að A-hluta rekstrarins, þess...
Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð - Vísir
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum voru tilkynnt klukkan 11 í morgun og bættist Anne Carson í hóp Íslendinga sem hlotið hafa bókmenntaverðlaunin ásamt Hall...
Dæmi um falskt jákvætt í sprengiefnaskimun eftir ferð í baðlón
📅 08.10.2026 👁️ 3
Dæmi um falskt jákvætt í sprengiefnaskimun eftir ferð í baðlón
Erlendir ferðamenn sem heimsóttu baðlón í heimsókn sinni til landsins hafa fengið falskt jákvætt í skimun eftir sprengiefnum eða hættulegum efnum á Ke...
Zelensky ætlar að hefna fyrir sprengjuárás á tvær rútur í Kramatorsk
📅 08.10.2026 👁️ 3
Zelensky ætlar að hefna fyrir sprengjuárás á tvær rútur í Kramatorsk
30, hið minnsta, voru drepnir í sprengjuárás á tvær rútur í Kramatorsk-borg í Úkraínu í dag.Borgin er við víglínuna í austurhluta Úkraínu.Vadym Filash...
Andrew search warrants were unlawful, court hears
📅 08.10.2026 👁️ 3
Andrew search warrants were unlawful, court hears
The former prince is taking legal action against Thames Valley Police after his homes were searched earlier this year.
Warrants used to search Andrew's homes were unlawful, court says
📅 08.10.2026 👁️ 1
Warrants used to search Andrew's homes were unlawful, court says
A criminal investigation into the former prince continues and police have retained material seized from his homes.
Girl's death prompts call for allergy management ratings
📅 08.10.2026 👁️ 3
Girl's death prompts call for allergy management ratings
Mia St Hilaire had a tree nut allergy and suffered an anaphylactic shock after drinking a milkshake.
Sólveig Anna vandar forystu VR ekki kveðjurnar – „Aðeins fávíst fólk“
📅 08.10.2026 👁️ 3
Sólveig Anna vandar forystu VR ekki kveðjurnar – „Aðeins fávíst fólk“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir forystu VR harðlega í nýjum pistli á Facebook. Hún sakar Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um að ...
Three arrested after crack and cocaine raids in Tenerife
📅 08.10.2026 👁️ 2
Three arrested after crack and cocaine raids in Tenerife
The National Police have arrested three people and shut down a suspected crack cocaine dealing operation in Puerto de la Cruz, North Tenerife, followi...
Skjaldar Kristrún seðlabankastjóra?
📅 08.10.2026 👁️ 3
Skjaldar Kristrún seðlabankastjóra?
Skjaldar Kristrún seðlabankastjóra? Fréttin8. október 2026Björn Bjarnason, Fjármál, InnlentLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Nú er þörf á að fo...
Up to 50 Scottish police officers suspended over alleged crimes against women
📅 08.10.2026 👁️ 2
Up to 50 Scottish police officers suspended over alleged crimes against women
Chief Constable Jo Farrell says more officers are likely to be suspended as officers are re-vetted.
Forty five Scottish police officers suspended over alleged crimes against women
📅 08.10.2026 👁️ 1
Forty five Scottish police officers suspended over alleged crimes against women
Chief Constable Jo Farrell says more officers are likely to face action as officers are re-vetted.
Formlegar viðræður hafnar í Suðurnesjabæ
📅 08.10.2026 👁️ 3
Formlegar viðræður hafnar í Suðurnesjabæ
Formlegar viðræður eru hafnar milli Samfylkingarinnar og óháðra og Framsóknar og óháðra um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Frétta...
Afhjúpar hvaða leikkona var lögð í einelti og stimpluð „mesta tíkin“ á setti
📅 08.10.2026 👁️ 4
Afhjúpar hvaða leikkona var lögð í einelti og stimpluð „mesta tíkin“ á setti
Leikarinn Michael Douglas segir að Charlie Sheen hafi límt skilti á bak Sean Young, meðleikkonu þeirra í Wall Street, sem á stóð „Mesta tíkin á settin...
Eigin­mennirnir fá „ahhsonna að­eins“ út­reið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Eigin­mennirnir fá „ahhsonna að­eins“ út­reið - Vísir
Um er að ræða sýninguna Bíddu bara: Þetta reddast! en um er að ræða framhald af sýningunni Bíddu bara sem sló í gegn í Gaflaraleikhúsinu á sínum tíma....
Nicole harðorð í garð frumvarps Sjálfstæðismanna – „Jafnvel fasismi í sinni tærustu mynd“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nicole harðorð í garð frumvarps Sjálfstæðismanna – „Jafnvel fasismi í sinni tærustu mynd“
Nicole Leigh Mosty, formaður Fjölmenningarseturs og fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar, segir nýtt frumvarp Sjálfstæðisflokksins sýna útlendingaa...
125 people rescued from dinghy off Lanzarote coast
📅 08.10.2026 👁️ 3
125 people rescued from dinghy off Lanzarote coast
Spanish maritime rescue crews rescued 125 people from an overloaded inflatable boat off Lanzarote last night (Wednesday) after receiving a distress ca...
Hefja form­legar við­ræður um myndun nýs meiri­hluta - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hefja form­legar við­ræður um myndun nýs meiri­hluta - Vísir
Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu sem flokksfélögin sendu frá sér í morgun. Fyrr í mánuðinum var greint frá því að meirihluti Samfylkingar ...
Konur, völd og verðleikar
📅 08.10.2026 👁️ 5
Konur, völd og verðleikar
Konur, völd og verðleikar Fréttin8. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Samsett mynd: ChatGBT. Páll Vilhjálmsson skrifar:...
"Ominous signs" of winter pressures as NHS waiting list grows
📅 08.10.2026 👁️ 4
"Ominous signs" of winter pressures as NHS waiting list grows
NHS winter pressures appear to be building already, with rises in waiting times for planned surgery.
Ís­lensk nóbels­verð­laun og erfið staða fram­halds­skólanna - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ís­lensk nóbels­verð­laun og erfið staða fram­halds­skólanna - Vísir
Fjallað var um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12.  Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 8. október 2026 Rekstrarstaða framhaldsskólanna hefur ...
Vill fækka borgar­full­trúum um átta - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vill fækka borgar­full­trúum um átta - Vísir
Áskorunin var samþykkt á þriðjudag með 15 atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknar og Miðflokksins gegn þremur atkvæðum Vi...
Seðlabankastjóri: Engin gullgerðarvél fundin upp á Íslandi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Seðlabankastjóri: Engin gullgerðarvél fundin upp á Íslandi
Á fundi Seðlabankans miðvikudaginn 7. október, þegar sagt var frá ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%, var ítarlega f...
Lög­reglan leitar upp­lýsinga um rispaða bíla - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Lög­reglan leitar upp­lýsinga um rispaða bíla - Vísir
Þrjár tilkynningar bárust í gær og í fyrradag um skemmdarverk samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. „Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Fl...
Fjár­mála­ráð­herra flautaður niður af sviði - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fjár­mála­ráð­herra flautaður niður af sviði - Vísir
Daði Már var að ljúka ávarpi sínu þar sem hann fjallaði um samstarf ríkis og sveitarfélaga þegar hávært flaut stöðvaði hann. Eftir rúma mínútu af fáti...
Krist­rún reyni að hafa milli­göngu í deilunni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Krist­rún reyni að hafa milli­göngu í deilunni - Vísir
Halla segir í samtali við fréttastofu að fulltrúar félaganna geri ráð fyrir að fara á skrifstofu Samtaka atvinnulífsins milli klukkan tvö og þrjú í da...