Íslenska rokksveitin KALEO frumsýnir í dag nýtt tónlistarmyndband við lagið „The Good Die Young “.Myndbandið var tekið upp við lifandi flutning sveitarinnar á Trölladyngju á Reykjanesskaga á meðan almyrkvi gekk yfir landið 12. ágúst síðastliðinn.KALEO er þekkt fyrir að fara óhefðbundnar leiðir við gerð tónlistarmyndbanda og hefur í gegnum tíðina nýtt stórbrotna íslenska náttúru sem umgjörð utan um lifandi flutning sinn.Hægt er að horfa á myndbandið hér að neðan:
KALEO nýtti almyrkvann í stórbrotið tónlistarmyndband - Sjáðu afraksturinn