Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar vakti mikla athygli í vikunni fyrir að mæta einn þingmanna í opnun á nýju menningarhúsi gyðinga sem nýverið var opnað í gamla Framsóknarhúsinu á Hverfisgötu í Reykjavik. Viðvera hans hlaut misjafnar undirtektir á samfélagsmiðlum og var Jón meðal annars í viðtali í fréttum Sýnar í gærkvöldi vegna málsins. Í færslu sinni á Facebook segist Jón gera það sem samviska hans bjóði og hann telji rettm aðrir geti haft skoðun á því.
Jón Gnarr: „Ég er bara manneskja eins og allt þetta fólk“