Jóhann Kristófer, betur þekktur sem Joey Christ, sló fyrst í gegn sem hluti af 101 Boys, hefur gert það gott sóló og átti nýverið í rappdeilum við Húbbabúbba. Jóhann hefur leikið í ýmsum þáttum og kvikmyndum, leikstýrt raunveruleikaþáttunum Æði og skrifað leikritin Sýningin okkar og Rómantísk gamanmynd ásamt öðrum.
Sjá einnig: „Lélegur í að fela hvernig mér líður og bera harm minn í hljóði“
Nadía Áróra, oft kölluð Lóla, er fyrirsæta sem hefur vakið athygli á síðustu árum fyrir smart stíl. Hún starfar jafnframt í tískubúðinni Spútnik og vann þar áður hjá Húrra Reykjavík og Smash.
Jóhann Kristófer var um árabil í sambandi með jarðfræðingnum Ölmu Gythu Huntingdon-Williams og eiga þau tvö börn saman en leiðir þeirra skildu á síðasta ári. Þá var Nadía í sambandi með leikaranemanum Krumma Kaldal en þau fóru hvort í sína áttina fyrr á árinu.
Jóhann og Nadía hafa lítið látið fara fyrir sambandinu á samfélagsmiðlum. Jóhann birti hins vegar mynd af Nadíu á Instagram-hringrás sinni í fyrradag sem hún deildi síðan sjálf. Þá hefur reglulega sést til þeirra saman undanfarið, meðal annars á skemmtistaðnum Röngten. Tólf ára aldursmunur er á parinu, Jóhann er fæddur árið 1992 en Nadía árið 2004.