Leikkonan Jennifer Garner telur að pása frá stefnumótum væri besta ákvörðunin sem hennar fyrrverandi og barnsfaðir, leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck gæti tekið eftir skilnað hans við leik- og söngkonuna Jennifer Lopez.
„Jen heldur að það gæti í raun verið gott fyrir Ben að taka sér pásu frá stefnumótum í smá tíma. Henni er mjög annt um hann og vill aðeins það sem er honum fyrir bestu að lokum,“ sagði heimildarmaður í samtali við Page Six.
„Frá hennar sjónarhóli er hann hamingjusamari en hann hefur verið í langan tíma og henni finnst eins og það gæti verið hollt fyrir hann að halda áfram að verja þeirri orku í sjálfan sig, vinnuna sína og fjölskylduna í stað þess að hoppa út í samband.“
Heimildarmaðurinn bætti við að Garner, 54 ára, sé þó ekki að reyna að hafa áhrif á einkalíf Affleck og myndi styðja hvaða ákvörðun sem hann tæki að lokum.
„Hún treystir Ben til að taka sínar eigin ákvarðanir og styður hann á báða vegu,“ sagði heimildarmaðurinn.

Annar heimildarmaður segir Affleck, 53 ára, ekki búinn að loka dyrunum alfarið á nýju ástarsambandi.
„Ben útilokar ekki stefnumót og væri opinn fyrir því að láta til sín taka aftur,“ sagði heimildarmaðurinn. „Hann á vini sem hafa boðist til að koma hann í samband, en hann er líka ótrúlega upptekinn núna og er ekki viss um að hann hafi tíma fyrir alvarlegt, skuldbindandi samband.“
Aðaláhersla Affleck mun nú vera á fjölskylduna og nokkur komandi verkefni, og „þangað fer mesta orka hans.“
Garner og Affleck sem voru gift í 10 ár, frá 2005 til 2015, eiga saman þrjú börn: Violet, 20 ára, Seraphinu, 17 ára, og Samuel, 14 ára.

Munu hjónakornin fyrrverandi hafa „eytt meiri tíma saman en nokkru sinni fyrr“ síðan Affleck skildi við Lopez, 56 ára.
„Affleck og Garner eiga mjög náið samband,“ sagði heimildarmaður og bætti við að bæði „viti að ekki allir fyrrverandi makar ná vel saman. Þau eru mjög þakklát fyrir að eiga svona frábært samband.“
Lopez og Affleck byrjuðu fyrst saman árið 2002 eftir að hafa unnið saman á tökustað Gigli. Þau trúlofuðust í fyrsta skipti í nóvember sama ár en slitu sambandinu í janúar 2004. Þau endurnýjuðu ástarsambandið og trúlofuðust í annað sinn árið 2021.
Í ágúst 2024, á rúmlega tveggja ára brúðkaupsafmælinu sótti Lopez um skilnað.