Jeffery Archer, metsölurithöfundur og fyrrverandi þingmaður í Bretlandi, er látinn 86 ára að aldri. Forlag Archer, HarperCollins, greindi frá andlátinu í dag en í tilkynningu segir að hann hafi látist skyndilega en friðsamlega á heimili sínu.
Archer á skrautlegan feril að baki en hann var einn söluhæsti rithöfundur Breta en hann seldi rúmlega 300 milljónir bóka á ferlinum. Meðal þekktustu verka hans eru Kane and Abel og Not a Penny More, Not a Penny less. Nýjasta verk Archers, skáldsagan Adam and Eve, kemur út á morgun en hann hafði gefið út að ritið yrði seinasta skáldsaga hans.
Archer átti langan feril í stjórnmálum en hann sat á breska þinginu fyrir Íhaldsflokkinn á árunum 1969-1974 og varð síðar varaformaður flokksins. Árið 1992 var Archer skipaður lávarður og sat hann í lávarðadeild breska þingsins frá 1992-2024. Ferill Archers er ekki flekklaus en árið 2001 var hann dæmdur í fjögurra ára fangelsi eftir að hafa logið í meiðyrðamáli gegn breska blaðinu The Star. Archer var látinn laus eftir tveggja ára vist og tók þá aftur við sæti sínu í lávarðadeildinni.
Kate Elton, forstjóri Harper Collins og ritstjóri Archer, segir fráfall hans mikið áfall. Hún lýsir honum sem meistara í frásagnarlist, hann hafi verið einstaklega vinnusamur og vandvirkur í hverju smáatriði í skrifum sínum